
Söngur og tónlist eflir sálina
Sigurjón Magnús Jósefsson
Menning er grunnstoð hvers samfélags og mótar sjálfsmynd, gildi og samskipti fólks. Í henni gegnir tónlist mikilvægu hlutverki og má með sanni telja eitt mikilvægasta listformið. Hún er alls staðar í daglegu lífi, hefur djúpstæð áhrif á tilfinningar og tengsl milli fólks og sameinar einstaklinga þvert á tungumál og menningu.
Kennsla í tónlist, sérstaklega innan tónlistarskóla, er afar mikilvæg fyrir börn og ungmenni. Þar fá nemendur tækifæri til að þróa hæfni sína í hlustun, samspili og skapandi tjáningu. Tónlistarnám krefst einbeitingar, þolinmæði og reglulegrar æfingar sem styrkir aga og sjálfstæð vinnubrögð sem nýtast á öðrum sviðum lífsins. Rannsóknir sýna afar jákvæð áhrif tónlistar, á þroska barna, og það kemur í raun ekki á óvart. Hún styrkir minni, málþroska, einbeitingu og sköpun og eykur jafnframt félagsfærni þar sem börn læra að vinna saman og bera virðingu fyrir hvert öðru.
Á sama tíma er brýnt að gleyma ekki hlutverki kennara. Þótt merki sjáist um að hefðbundin kennsla sé að breytast, gegna kennarar áfram einu mikilvægasta starfi samfélagsins, þar sem þeir mennta og leiðbeina unga fólkinu sem er framtíð okkar. Sérstaklega á það við um tónlistarkennara, sem njóta ekki alltaf þeirrar viðurkenningar sem þeir eiga skilið, þrátt fyrir lykilhlutverk sitt. Þeir miðla dýrmætri reynslu og þekkingu áfram, og það eru verðmæti sem aldrei má glatast.
Til framtíðar er mikilvægt að efla menningarlíf á Akranesi og styrkja menntun á sviði lista og tónlistar. Með því að tryggja börnum og ungmennum aðgengi að fjölbreyttri menningu erum við að styðja við þroska þeirra og byggja upp sterkt samfélag.
Börnin okkar eru framtíðin og því þarf menning og menntun að vera í forgangi. Hún má aldrei sitja á hakanum heldur að vera viðurkennd sem einn af grunnþáttum heilbrigðs og öflugs samfélags.
,,Söngur og tónlist eflir sálina“ hefur löngum verið sagt, ég veit að það er rétt.
Sigurjón Jósef Magnússon
Höfundur er tónlistarmaður og frambjóðandi D-lista Sjálfstæðisflokks á Akranesi