
Skammtímadvöl á Akranesi – byggjum upp til framtíðar
Kristinn Hallur Sveinsson
Mikilvægi skammtímadvalar fyrir fötluð börn á Akranesi
Hér á Akranesi er þörf fyrir meiri sérhæfða þjónustu við fötluð börn veruleg. Aukin meðvitund meðal almennings er um réttindi þeirra og fjölskyldna þeirra. Skammtímadvöl er þjónusta sem er afar mikilvæg. Þar fá börn að dvelja tímabundið utan heimilis við öruggar og faglegar aðstæður nálægt fyrirmyndar spítala. Á Akranesi hafa foreldrar fatlaðra barna og ungmenna lengi kallað eftir slíkri þjónustu. Nú þegar er búið að taka frá lóð við Laugarbraut fyrir slíkt úrræði. Það er tækifæri sem ekki má láta framhjá sér fara.
Nauðsynleg hvíld er mikilvæg
Skammtímadvöl gegnir lykilhlutverki í lífi bæði fatlaðra barna og fjölskyldna þeirra. Fyrir foreldra og aðstandendur fatlaðra barna getur umönnun verið bæði líkamlega og andlega krefjandi, oft allan sólarhringinn. Skammtímadvöl veitir þeim nauðsynlega hvíld og tækifæri til að endurnýja krafta sína. Slík hvíld er ekki munaður heldur forsenda þess að fjölskyldur geti haldið áfram að veita börnum sínum góða umönnun til lengri tíma. Án þessa stuðnings eykst álag, hætta er á kulnun og jafnvel brostnum fjölskylduaðstæðum.
Jákvæð áhrif á þroska barna
Fyrir börnin sjálf hefur skammtímadvöl einnig jákvæð áhrif. Þar fá þau tækifæri til að vera í góðu umhverfi með öðrum börnum á jafningjagrundvelli, taka þátt í skipulögðum verkefnum og efla sjálfstæði sitt. Þetta getur haft jákvæð áhrif á þroska þeirra, sjálfsmynd og lífsgæði. Með réttum stuðningi frá fagfólki er hægt að skapa umhverfi þar sem hvert barn fær að njóta sín og þróa hæfileika sína á eigin forsendum. Á virkum dögum geta börnin jafnframt sótt sinn skóla frá skammtímadvölinni og haldið þannig tengslum við sitt daglega líf og rútínu í sinni heimabyggð, umhverfi sem þau þekkja.
Skammtímadvöl styrkir samfélagið
Akranes er vaxandi samfélag. Þrátt fyrir það hefur þessi þjónusta ekki fylgt þeirri þróun. Fjölskyldur þurfa oft að sækja skammtímadvöl út fyrir bæinn, sem getur verið bæði tímafrekt og kostnaðarsamt. Það að hafa skammtímadvöl innan bæjarins myndi létta verulega á þessum fjölskyldum og styrkja samfélagið í heild sinni. Það sendir einnig skýr skilaboð um að Akranes sé samfélag sem leggur áherslu á jöfnuð, velferð og þátttöku allra.
Byggjum upp frá grunni
Lóðin við Laugarbraut er sérstaklega vel til þess fallin til að reisa þar hús fyrir skammtímadvöl. Þar stendur gamalt áhaldahús bæjarins sem er mikið skemmt vegna myglu og þeirri starfsemi hefur verið fundinn annar staður. Þarna er skynsamlegt að nýta svæðið undir nýtt og mikilvægt úrræði sem þjónar raunverulegri þörf íbúa. Með því að byggja upp nútímalega aðstöðu frá grunni er hægt að tryggja að öll aðstaða uppfylli ströngustu kröfur um öryggi, aðgengi og vellíðan.
Einnig er mikilvægt að horfa til langtímaáhrifa slíkrar uppbyggingar. Skammtímadvöl getur dregið úr þörf fyrir kostnaðarsamari úrræði síðar meir, til dæmis vegna aukins álags á fjölskyldur eða skorts á stuðningi. Með því að fjárfesta í snemmtækri og fyrirbyggjandi þjónustu er hægt að spara samfélaginu kostnað til lengri tíma, auk þess sem lífsgæði þeirra sem þjónustunnar njóta batna til muna.
Stígum skref til réttlætis
Samfélagsleg ábyrgð sveitarfélaga felst meðal annars í því að tryggja að allir íbúar hafi aðgang að viðeigandi þjónustu. Fötluð börn og fjölskyldur þeirra eiga rétt á þeirri þjónustu í nærsamfélaginu á Akranesi. Með því að byggja upp skammtímadvöl á Akranesi munum við stíga mikilvægt skref í átt að réttlátara og mannúðlegra samfélagi. Tækifærið er til staðar – nú þarf viljann til að láta það verða að veruleika. Styðjum við fjölskyldur, eflum börn og styrkjum samfélagið.
Kristinn Hallur Sveinsson
Höf. er bæjarfulltrúi og skipar 3. sæti á lista Samfylkingarinnar á Akranesi