
Síminn, gervigreindin og skólastarfið í FVA
Steinunn Inga Óttarsdóttir
Vorönnin leið heldur betur hratt í Fjölbrautaskólaskóla Vesturlands. Þegar þrír fimmtudagar á vorönn eru frídagar þarf aldeilis að halda vel á spöðunum.
Í Annál vorannar, sem birtur er á vef skólans, kemur m.a. fram að stefnumótun er alltaf í gangi í FVA og verður sífellt inngrónari í námi og kennslu. Allar aðgerðir miða með einum eða öðrum hætti að því að efla nemendur og búa þeim og starfsfólki gott náms- og starfsumhverfi. Meðal annars er unnið að því að auka námskraft, seiglu, færni og vellíðan. Áhersla er meðal annars á að auka virkni nemenda og þátttöku og þar með talið að halda þeim frá símanum í kennslustundum.
Margt hefur breyst á sl. áratugum í skólastarfi; athyglisspönn styttist sífellt, heimanám er ódrjúgt og námið er ekki alltaf í forgangi hjá nemendum því langflestir vinna með náminu, æfa íþróttir eða verja tíma við skjáinn. Ljóst er að síminn og samfélagsmiðlar verða sífellt kröfuharðari á áhuga og athygli fólks um veröld víða og það er ekki bara vandi í skólanum, heldur líka á heimili og vinnustað. Ekki er á dagskrá enn sem komið er, að FVA leggi á símabann. En auðvitað er bannað skv. skólareglum að hangsa í símanum í kennslustundum og skylt er að fylgja fyrirmælum kennara þar um. Að takmarka símanotkun ungmenna í framhaldsskóla með formlegum hætti er möguleiki sem mætti alveg skoða, en eins og staðan er orðin þyrfti það að gerast í takt við nemendur, foreldrasamfélag, nærumhverfi o.fl. Slíkt skref yrðum við að taka öll saman og byrja þá á okkur sjálfum. Feta mætti í fótspor forsetans sem sagði í ræðu sinni á þjóðhátíðardaginn að hún hygðist hvíla sig á samfélagsmiðlum í sumarfríinu.
Gervigreind er farin að láta til sín taka í verkefnavinnu og ritgerðasmíð hjá nemendum um heim allan. Lögð er áhersla í kennslu á að nýta möguleika gervigreindar og taka hana í sína þjónustu eins og hentar og hægt er, en varast að gleypa allt hrátt sem frá henni kemur eða láta hana vinna verkefnin sem sett eru fyrir í skólanum. Gervigreindin er frábært tól með ótal möguleikum og við í FVA notum hana til að spara tíma, fá hugmyndir, skoða og skapa. En gætum þess að það sé ekki á kostnað menntunar og þeirrar hæfni og færni sem við erum að byggja upp með náminu.
Stór hópur útskrifaðist frá FVA í vor, eða 85 nemendur, og meðal þeirra eru 23 sem ljúka meistaranámi í sinni iðngrein. Það er sérlega gleðilegt og vonir standa til að hinir nýju meistarar verði duglegir að taka nema á samning, því sem kunnugt er sárvantar nemapláss. Mikill skortur erá iðnaðarmönnum á Íslandi og um heim allan og við í FVA gerum allt sem í okkar valdi stendur til að bæta þar úr. Nú þegar er orðið fullt á öllum verknámsbrautum fyrir haustið. Fyrirhugað er að innrita á ný í meistaraskólann í janúar 2026, fáist til þess fjölgun nemendaígilda og þar með fjárveiting.
Þau gleðitíðindi urðu að samningar náðust á vorönn milli Kennarasambands Íslands og ríkis eftir verkföll og vesen og fékk félagsfólk KÍ langþráðar, verðskuldaðar og umtalsverðar kjarabætur. En nú bregður svo við að í fjárlögum er boðað til niðurskurðar í framhaldsskólum landsins. Verkefnum skólans hefur þó ekki fækkað svo það verður að forgangsraða og finna milliveg í hagræðingu án þess að slá af gæðum og kröfum.
Áfram höldum við okkar striki; FVA er alltaf á uppleið. Nemendur eru ríflega 500 og starfsmenn 70 talsins. Aðsókn að fjölbreyttum námsleiðum skólans er glimrandi góð og vinnustaðurinn eftirsóttur.
Nemendur halda okkur á tánum og gleðja okkur daglega með uppátækjum sínum. Þau gera allt umstangið svo sannarlega þess virði.
Gleðilegt sumar!
Steinunn Inga Óttarsdóttir skólameistari FVA