Samheldnin er dýrmæt

Fannar Þór Þorfinnsson

Ég hef verið búsettur í Grundarfirði síðan 2021. Ég flutti hingað ásamt konunni minni og börnum og höfum við komið okkur vel fyrir. Frá fyrsta degi hefur okkur liðið vel. Það eru forréttindi að búa úti á landi og ala upp börn í samfélagi þar sem fólk þekkist og styður hvert annað.

Konan mín er ættuð úr Grundarfirði og á hér margar góðar minningar úr æsku. Sjálfur er ég landsbyggðarmaður í grunninn og þegar ég lít til baka sé ég hversu dýrmætt það var að alast upp við slíkar aðstæður. Það sem stóð upp úr þegar við fluttum hingað var hversu vel var tekið á móti okkur. Sú samheldni sem einkennir Grundarfjörð er verðmæt og hana vil ég styrkja enn frekar. Ég veit sjálfur hvað það skiptir miklu máli að finna sig vel í nýju samfélagi og þess vegna vil ég vinna að því að fleiri fjölskyldur geti upplifað það sama.

Þegar ég horfi á Grundarfjörð sé ég tækifæri sem við eigum að nýta betur. Staðsetningin er sterk, innviðir til staðar og grunnurinn góður, nú þarf að byggja ofan á það með skýrri framtíðarsýn og markvissri framkvæmd.

Ég hef starfað við mannvirkjagerð í um 20 ár, bæði við smíðar, verkefnastjórnun og komið að skipulagsmálum. Í dag starfa ég sem verkefnastjóri á verkfræðistofu þar sem ég vinn verkefni frá hugmynd að framkvæmd. Sú reynsla hefur kennt mér eitt; það skiptir ekki bara máli að hafa hugmyndir það skiptir máli að koma þeim í framkvæmd. Í mínu starfi hef ég ítrekað þurft að taka erfiðar ákvarðanir hratt og undir pressu. Það hefur kennt mér að vanda undirbúning, hlusta á ólík sjónarmið og standa með ákvörðunum þegar þær eru teknar.

Í Grundarfirði eru skýr tækifæri en við eigum að vinna markvisst með þau. Að mínu mati þurfum við meira íbúðarhúsnæði, fjölbreyttari atvinnutækifæri og skýra framtíðarsýn sem leiðir uppbyggingu áfram. Ef við viljum að börnin okkar geti búið hér, þá verður að skapa raunveruleg skilyrði fyrir það, bæði húsnæði og atvinnu. Annars missum við þau burt. Við eigum að halda áfram að þróa skipulagsmál og tryggja að sú vinna skili sér í raunverulegri uppbyggingu og skýrum næstu skrefum. Skipulag eitt og sér dugar ekki, það þarf að fylgja því eftir með framkvæmd. Við eigum að vera skrefinu á undan, hugsa fram í tímann og taka ákvarðanir sem byggja upp samfélagið til framtíðar ekki bara til skamms tíma. En uppbygging snýst ekki bara um hús og atvinnu. Hún snýst fyrst og fremst um fólk.

Við eigum að hlúa að Grundfirðingum, styðja við öflugt félagsstarf og styrkja það sem gerir samfélagið okkar lifandi og sterkt. Og við eigum aldrei að gleyma þeim sem byggðu þetta samfélag upp. Eldri borgarar eiga skilið virðingu, öryggi og gott umhverfi til að búa í og að við stöndum með þeim sem lögðu grunninn að því sem við njótum í dag.

Að mínu mati þurfum við skýra og sameiginlega framtíðarsýn fyrir Grundarfjörð. Við eigum að vita hvert við erum að fara ekki bara næstu mánuði, heldur næstu ár og áratugi. Markmið okkar eiga að vera skýr, verkefnum vel forgangsraðað og eftirfylgni markviss og ákveðin. Við eigum ekki aðeins að ræða hlutina – við eigum að klára þá.

Ég tel mikilvægt að sama á hvaða hátt kosningarnar fara, þá vinnum við saman að þessari framtíðarsýn. Uppbygging Grundarfjarðar er sameiginlegt verkefni okkar allra. Í grunninn viljum við það sama; sterkt, lifandi og sjálfbært samfélag sem fólk vill búa í til framtíðar.

Með því að setja x við B lofa ég ykkur því að leggja mitt af mörkum til að leiða þessi mál áfram með reynslu, festu og skýra áherslu á að hlutirnir fari frá hugmynd yfir í framkvæmd. Grundarfjörður á það skilið.

 

Fannar Þór Þorfinnsson

Höf. skipar 1. sæti á lista Framsóknar og félagshyggjufólks í Grundarfirði