Samfélagsleg nýsköpun er lykill að dafnandi samfélagi

Signý Óskarsdóttir

Þegar talað er um nýsköpun hugsum við oft fyrst um tækni, sprotafyrirtæki og fjárfestingar. En ein öflugasta tegund nýsköpunar á rætur í samfélaginu sjálfu. Samfélagsleg nýsköpun snýst um að finna nýjar leiðir til að mæta raunverulegum þörfum fólks og leysa samfélagslega brýn mál. Með því að skapa umhverfi sem styrkir tengsl milli íbúa, stofnanna og fyrirtækja er hægt að hlúa að nýskapandi virkni í gegnum markvissa samvinnu og samtal.

Samfélagsleg nýsköpun byggir á staðbundinni þekkingu og samstarfi og í Borgarbyggð er að finna góð dæmi um vel heppnaða samfélagslega nýsköpun. Tónlistarskóli Borgarfjarðar og Safnahús Borgarfjarðar hafa um árabil sameinast um að kenna ungmennum að semja tónlist við borgfirsk ljóð, en á sama tíma er það samstarf líka þróun á skólastarfi og menningartengt nám. Þegar leikskólarnir Klettaborg og Andabær þróa hugmynd að STEAM námskrá þá er það samfélagsleg nýsköpun en einnig skólaþróun sem leiðir til vísindalæsis, aukins skilnings á raungreinum og skapandi vinnu. Það er samfélagsleg nýsköpun að þróa STEAM nám og kennslu á framhaldsskólastigi eins og Menntaskóli Borgarfjarðar hefur unnið að síðustu ár. Nám sem styður við nýskapandi hugsun, nám sem leiðir til þess að samfélagið eignast ungt fólk með kjark til að fylgja hugmyndum sínum eftir. Ungt fólk sem veit að það getur haft áhrif á umhverfi sitt og samfélag. Það er samfélagsleg nýsköpun að þróa aðferðir til að efla farsæld og vellíðan barna og ungmenna í gegnum skapandi vinnu eins og gert er í Grunnskólanum í Borgarnesi. Það sama má segja um innleiðingu á hæglæti sem leikskólinn Ugluklettur hefur unnið að við góðan orðstýr. Það er samfélagsleg nýsköpun að stofna Borðspilaklúbb Vesturlands sem eflir samveru í gegnum áhugamál og Borgarnes borðar saman er enn eitt dæmið um samfélagslega nýsköpun sem styður við félagsauð í Borgarbyggð. Það er líka samfélagsleg nýsköpun þegar ungt fólk tekur sig til og stofnar RÝMI X, óhagnaðardrifin félagasamtök til að búa til eflandi vettvang fyrir samveru og félagslega virkni. Af þessu má sjá að dæmin eru mörg og samfélagið okkar er ríkara vegna dugnaðar og elju þeirra einstaklinga sem leiða og taka þátt í samfélagslegri nýsköpun.

Hvað ef við gætum margfaldað tækifæri fyrir okkur öll að taka þátt í samfélagslegri nýsköpun í Borgarbyggð? Hvað ef til væri vettvangur sem lætur drauma rætast?

Lengi hefur verið talað um mikilvægi þess að hlú að nýskapandi umhverfi í Borgarbyggð en lítið hefur áunnist. Þar sem sveitarfélög styðja markvisst við nýskapandi virkni íbúa eru meiri líkur á því að félagsauður eflist og íbúar verði virkir þátttakendur í samfélagslegri þróun.

Ein af hugmyndunum í stefnu Borgarbyggðarlistans er að skapa opin menningar- og samverurými þar sem íbúar, frumkvöðlar, lista- og handverksfólk getur unnið, fræðst og stofnað til samvinnu. Slíkur vettvangur gæti orðið kveikjan að nýjum atvinnutækifærum, listrænum samstarfsverkefnum, lausnum á félagslegum áskorunum eða einfaldlega ýtt undir sterkari samheldni á milli okkar sem búum í sveitarfélaginu. Það vantar ekki hugmyndir. Það vantar vettvang og áræðni til að setja samfélagsleg markmið framar skammtímahagsmunum. Borgarbyggðarlistinn vill búa til umgjörð og vettvang sem styður við einstaklinga og hópa sem vilja efla sig og samfélagið með menningu, inngildingu og félagsleg tengsl að leiðarljósi. Samfélagsleg nýsköpun fyrir okkur öll!

 

Signý Óskarsdóttir

Höf. er doktorsnemi og skipar 11. sæti Borgarbyggðarlistans