Samfélag fyrir okkur öll – frá vöggu til grafar

Rannveig Tenchi Ernudóttir

Málefni eldra fólks eru samfélagsmál – enda byrjum við að eldast strax við getnað. Það hvernig við byggjum upp þjónustu, umhverfi og tækifæri til þátttöku fyrir fólk þegar það eldist segir allt sem segja þarf um samfélagið okkar. Viljum við vera samfélag þar sem eldra fólk dregur sig til baka og hættir hægt og rólega að vera hluti af samfélaginu? Eða ætlum við að vera samfélag þar sem fólk tilheyrir, er þátttakendur og hefur hlutverk og tilgang út alla ævina? Íbúalistinn velur síðari leiðina.

Við viljum heilbrigt og nærandi samfélag, sem fylgir leiðbeiningum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) um heilbrigða öldrun (e. healthy aging). Það þýðir aðgengilegt samfélag sem byggir á öflugu og faglegu forvarnarstarfi, spornar gegn einmanaleika og tryggir viðeigandi þjónustu þegar þörf er á henni. Sjálfstæði og góð lífsgæði alla ævi eru markmiðið.

Kjarninn nálguninni er einfaldur: Styðja fólk til að gera sjálft – ekki fyrir það. Rétt eins og við getum hindrað þroska barna með því að leyfa þeim ekki að prófa sig áfram og læra – tökum við færni frá fólki með því að gera hluti fyrir það sem það ræður sjálft við. Meginmarkmið forvarnarstarfs og stuðningsþjónustu er að viðhalda færni, getu og virkni hvers og eins. Stuðningsþjónusta snýst um að valdefla einstaklinginn og byggir á endurhæfingu og þjálfun.

Þegar þjónusta er veitt án þess að skilgreina raunverulega umfang og þörf fyrir hana, fer hún að hafa öfug áhrif. Þá dregst úr virkni og þjónustuþörfin eykst og þyngist. Það er hvorki gott fyrir einstaklinginn né samfélagið. Röng og of mikil notkun á þjónustu hefur nefnilega áhrif á okkur öll, því svo þegar virkilega á reynir þá er hvorki fjármagn né starfsfólk til staðar til að koma og styðja við okkur. Á sama tíma vitum við að stærsta lýðheilsuáskorun samtímans er einmanaleiki og skortur á innihaldsríkum tengslum. Á þeim grunni stendur og fellur megin partur heilsu og lífsgæða okkar – og þar með tækifærinu til að eldast farsællega.

Við hjá Íbúalistanum viljum að Höfðaborg sé fyrirmyndar samfélagshús. Staður þar sem fólk á öllum aldri getur komið saman, tekið þátt, fundið tilgang og tengsl. Samfélagshús eru vettvangur hlutverka, tilgangs og daglegs lífs. Þar sem samfélagið kemur saman.

Við horfum á Skólastíginn, Höfðaborg og Tónó, í heild sinni og viljum þróa svæðið sem lifandi menningar- og tómstundasvæði fyrir allar kynslóðir. Þar eru tækifæri til að tengja saman fjölbreytta starfsemi, hafa almennilega félagsmiðstöð fyrir börn og unglinga, aðstöðu fyrir foreldra í fæðingarorlofi, veglegt rými fyrir „karla í skúrum“ og allt þar á milli. Þar viljum við byggja umhverfi og samfélag sem styður virkni og þátttöku okkar allra.

Samfélag sem styður við fólk þegar á reynir, en gleymir ekki því sem skiptir mestu máli; að við viljum öll halda áfram að tilheyra, vera heilbrigð, sjálfstæð og hafa hlutverk – alla ævi. Þetta er ekki flókið í grunninn – en krefst skýrrar sýnar og betri nýtingar á innviðum okkar.

Þess vegna leggjum við í Íbúalistanum sérstaka áherslu á viðeigandi og faglega stuðningsþjónustu og að móta saman kynslóðablandað samfélag sem styður okkur frá vöggu til grafar. Kynslóðablandað samfélag er sterkara samfélag.

 

Rannveig Tenchi Ernudóttir

Höf. er kynslóðablandari og skipar 2. sæti hjá Íbúalistanum í Stykkishólmi