Rödd bæjarbúa skiptir máli

Ellý Sandra Ingvarsdóttir

Sveitarstjórnarkosningar snúast um nærumhverfi okkar allra. Þar eru teknar ákvarðanir sem hafa bein áhrif á daglegt líf bæjarbúa, þjónustu við fjölskyldur, skipulag byggðar, skólamál,samgöngur og uppbyggingu samfélagsins til framtíðar. Þess vegna skiptir rödd hvers íbúa máli.

Lýðræðið verður sterkast þegar sem flestir taka þátt. Með því að kjósa gefa bæjarbúar skýr skilaboð um hvaða gildi þeir vilja að móti þróun sveitarfélagsins og hvaða áherslur eigi að vera í forgangi. Hvert atkvæði hefur vægi og getur haft áhrif á stefnu bæjarins næstu 4 árin. En þátttaka í lýðræði snýst ekki aðeins um að mæta á kjörstað. Hún felst einnig í virkri umræðu. Einnig að koma skoðunum sínum á framfæri og taka þátt í mótun framtíðar samfélagsins. Sveitarfélag sem hlustar á íbúa sína tekur betri ákvarðanir og byggir upp meira traust.

Við þurfum bæjarstjórn sem leggur áherslu á opið samtal, gagnsæi og raunverulegt samtal við íbúa. Þegar rödd bæjarbúa fær að heyrast skapast sterkari tengsl milli kjörinna fulltrúa og samfélagsins sem þeir þjóna. Sveitarstjórnarkosningar eru okkar vettvangur til að móta bæinn sem við viljum búa í. Rödd bæjarbúa skiptir máli og hún á að fá að heyrast.

Nú er tækifærið til að hafa áhrif setjið X við M.

 

Ellý Sandra Ingvarsdóttir

Höf. skipar 8. sæti á lista Miðflokksins X-M á Akranesi