
Roðagyllum heiminn með appelsínugulum lit
Unnur og Jóhanna frá Soroptimistaklúbbi Akraness og nærsveita
Soroptimista samtökin eru alþjóðleg samtök sem hafa það markmið að stuðla að jákvæðri heimsmynd, þar sem samtakamáttur kvenna nær fram því besta sem völ er á. Samtökin vinna að bættri stöðu kvenna, að mannréttindum öllum til handa sem og jafnrétti, framförum og friði með alþjóðlegri vináttu og skilningi að leiðarljósi.
Á hverju ári standa Soroptimistar um allan heim fyrir átaki gegn kynbundnu ofbeldi. Hér á landi höfum við kosið að kalla það „Roðagyllum heiminn“ (e. Orange the World). Appelsínugulur litur er tákn átaksins sem stendur yfir dagana 26. nóvember til 10. desember ár hvert. Með átakinu vilja samtökin vekja athygli á kynbundnu ofbeldi gegn konum. Ofbeldi má gjarnan flokka í sex flokka, andlegt, líkamlegt, kynferðislegt, fjárhagslegt og stafrænt ofbeldi og það sem kallað er eltihrellir. Í ár snýr baráttan að mikilvægi þess að lesa merkin, þ.e.a.s. horfa í kringum sig. Við vitum öll að ofbeldi/heimilisofbeldi getur verið mjög falið og við hvetjum fólk til að “Þekkja rauðu ljósin” til að hægt sé að bregðast við í tíma. Við getum öll lagt okkar að mörkum og við hvetjum alla til að láta vita af minnsta grun í okkar nærumhverfi.
Soroptimistaklúbbur Akraness og nærsveita hvetur alla; stofnanir, fyrirtæki og einstaklinga til að bregða appelsínugulum lit á umhverfi sitt. Það er hægt að gera með ýmsum hætti, t.d. með appelsínugulum ljósum, fara í appelsínugul föt eða skó, vera með appelsínugular slæður og klúta eða hvað sem hverjum og einum dettur í hug.
Unnur Guðmundsdóttir og Jóhanna H Hallsdóttir
Höf. eru verkefnastjórar Soroptimistaklúbbs Akraness og nærsveita.
