Rekstrargrundvelli Landbúnaðarháskóla Íslands ógnað

Ragnheiður I Þórarinsdóttir

Landbúnaðarháskóli Íslands hefur á undanförnum árum sótt fram og styrkt stöðu sína verulega á alþjóðavettvangi. Starfsfólk skólans hefur náð mikilvægum árangri í rannsóknum, kennslu og öflun erlendra styrkja. Nú liggja hins vegar fyrir tillögur um fjárframlög fyrir árið 2027 sem veikja rekstrargrundvöll skólans og getu hans til að halda þessari sókn áfram.

Samkvæmt áætlunum LBHÍ fær skólinn aðeins um 75% þess rekstrarframlags sem gert hafði verið ráð fyrir. Framlag háskólaráðuneytisins myndi standa undir um 45% áætlaðs rekstrarkostnaðar skólans, en á undanförnum árum hefur hlutfallið verið um tveir þriðju hlutar. Þetta er veruleg breyting á forsendum starfseminnar.

Dæmi um árangur skólans er Peatland LIFEline.is, langtímaverkefni um endurheimt votlendis og vernd líffræðilegrar fjölbreytni. LBHÍ leiðir verkefnið með sex samstarfsaðilum og framlag Evrópusambandsins til þess nemur um sex milljónum evra. Verkefnið styður beint við stefnu ríkisstjórnarinnar í loftslags- og náttúruverndarmálum. Hér er aflað erlends fjármagns til verkefna sem íslenska ríkið ætti sjálft að standa fjárhagslega að.

LIFE-styrkurinn er þó bundinn endurheimtinni, vöktun og öðrum skilgreindum verkefnum. Hann er ekki frjálst ráðstöfunarfé til grunnreksturs skólans. Aðrir rannsóknastyrkir eru sömuleiðis bundnir verkefnum, meðal annars ráðningum doktorsnema. Þeir efla þekkingu og uppbyggingu við skólann en koma ekki í stað stöðugrar fjármögnunar kennslu, innviða og almenns rekstrar.

Reglur nr. 755/2024 um fjárframlög til háskóla hafa að markmiði gagnsæja úthlutun, aukin gæði náms og rannsókna og fyrirsjáanleika í fjármögnun. Árangurstengt reiknilíkan á að hvetja háskóla til sóknar. Hjá LBHÍ hækka framlög vegna kennslu og rannsókna, en sú hækkun hverfur í skerðingu á samfélagslega hluta líkansins vegna breytinga á reiknireglum ráðuneytisins. Innleiðingarframlag skólans lækkar eitt og sér um rúmlega 200 milljónir króna.

Í þeim útreikningum sem ráðuneytið hefur kynnt er LBHÍ eini háskólinn sem fær lægra heildarframlag úr líkaninu í krónum talið en árið 2026. Það er áður en fyrirhuguð tilfærsla 200 milljóna króna úr rekstri til Jarðræktarmiðstöðvar er tekin með. Skýra þarf hvers vegna LBHÍ er ekki varinn skerðingu þegar verja átti allt háskólaumhverfið gegn slíku.

Við gerum okkur grein fyrir að innleiðingarframlagið átti að minnka með árunum. Hraði breytinganna verður þó að gefa svigrúm til aðlögunar. Fyrirhugaðar breytingar á reiknilíkani ráðuneytisins voru kynntar fulltrúum háskólanna á fundi 19. október, án þess að undan hefði farið samráð sem gæfi skólanum raunhæft færi á að bregðast við. Við höfum óskað eftir útreikningum fyrir háskólana samkvæmt gildandi reglugerð og skýringum á forsendum breytinganna.

LBHÍ hefur einnig óskað skýringa á heimild ráðuneytisins til að færa 200 milljónir króna af rekstrarframlagi yfir í fjárfestingu í Jarðræktarmiðstöð. Forsendur skólans við ráðstöfun Korpu þar sem Jarðræktarmiðstöðin var áður staðsett voru að tryggt yrði fjármagn til Jarðræktarmiðstöðvar, rannsóknagróðurhúss og kaupa á Mið-Fossum, samhliða flutningi tilraunastarfseminnar að Hvanneyri. Sú uppbygging má ekki ganga á grunnrekstur skólans. Við höfum lagt til að ráðuneytið kanni hvort þessar 200 milljónir geti komið af óráðstöfuðu fé þess á árinu 2026.

Þessu til viðbótar er samkvæmt fyrirliggjandi fjármögnunaráætlun öllu fjárfestingarframlagi skólans ráðstafað til Jarðræktarmiðstöðvar. Þá vantar fjármagn til reglubundinnar endurnýjunar tækjabúnaðar og annarra nauðsynlegra fjárfestinga. Einnig þarf að taka tillit til þess húsnæðiskostnaðar sem LBHÍ ber, meðal annars vegna umsjónar með friðuðum byggingum á Hvanneyri. Þær skyldur hafa kostnað í för með sér sem ekki er sérstaklega reiknaður inn í framlagið.

Ráðuneytið hefur upplýst að unnið sé með athugasemdir skólans, en efnisleg svör og lausn liggja enn ekki fyrir. Nauðsynlegt er að fjármögnun LBHÍ verði leiðrétt áður en fjárlög verða afgreidd, að fjárfestingar verði fjármagnaðar án skerðingar grunnrekstrar og að breytingar á reiknilíkani verði unnar í samráði við skólana með raunhæfum aðlögunartíma. Traustur rekstrargrundvöllur er forsenda þess að LBHÍ geti áfram aflað alþjóðlegs fjármagns og skilað árangri sem nýtist íslensku samfélagi.

 

Ragnheiður I. Þórarinsdóttir

Höf. er rektor Landbúnaðarháskóla Íslands