Rafrænar kosningar styrkja lýðræðið

Eiríkur Þór Theodórsson

Strax í upphafi kosningabaráttunnar kemur fram skýr munur á Pírötum annars vegar og nær öllum hinum flokkunum sem að hafa ákveðið að bjóða fram í komandi kosningum. Munurinn er að Píratar þora að láta fólkið ráða hverjir skipa listana og hvernig þeim er raðað í sæti.

Þetta er gert með lýðræðislegri kosningu á netinu; sjá www.x.piratar.is, eftir að fólk hefur gefið kost á sér og flokksmeðlimum er gefin ein vika til að kynna sér frambjóðendur og klára málið. Þessi lýðræðislega leið er gegnsæ og nútímaleg.

Er það ekki liðin tíð, gamaldags og mjög ólýðræðislegt, að vera með kjördæmisráð sem stillir upp lista þegar hægt er að hafa rafræna kosningu sem allir félagar geta tekið þátt í. Píratar notast við nútímatækni og allt er upp á borðum hvað varðar vinnubrögðin. Þetta er leið sem að hinir flokkarnir þora ekki að fara, þeir virðast hræddir við beint lýðræði og nútímatækni.

 

Píratar boða nýjar aðferðir og ný vinnubrögð

Beint lýðræði er hluti af þeirri framtíðarsýn sem Píratar sjá fyrir sér. Fólkið í landinu á að geta tekið virkari þátt í ákvörðunum um kjör þess og framgang þjóðmála. Hægt er að sjá fyrir sér þjóðaratkvæðagreiðslu um heilbrigðismálin, þar sem fólkið í landinu ákveður sjálft hversu miklum fjármunum á að ráðstafa til þessa mikilvæga málaflokks í lýðræðislegum beinum kosningum sem fram fara á netinu.

Í dag og á undanförnum áratugum hefur þjóðin mátt horfa upp á hvernig staðhæfingar og loforð stjórnmálamanna hafa útþynnst og orðið vita merkingarlaus þegar búið er að mynda ríkisstjórn. Stefnuyfirlýsingar samstarfsflokka í ríkisstjórn hafa heldur ekki haldið vatni eins og dæmin sýna og er nýjasta fjárlagafrumvarpið skýrt dæmi um svikin loforð.

Píratar vilja hleypa fólkinu í landinu beint að ákvörðunum um mikilvægustu málin sem alþingi fjallar um og þarf að leysa.  Með rafrænum kosningum og beinu lýðræði næst meirihlutavilji fólksins í landinu að koma fram, ekki bara í alþingiskosningum heldur líka þeirra á milli.

Píratar ráða við tæknina og treysta fólkinu til að velja.  Horfum fram á vegin og hræðumst ekki breytingar.

 

Eiríkur Þór Theodórsson.

Höf. er frambjóðandi í prófkjöri Pírata í Norðvesturkjördæmi.