Ráðherra í stríð við strandveiðar

Inga Sæland

Fyrirhugaðar breytingar sjávarútvegsráherra um að taka upp svæðaskiptingu á kvóta strandveiðanna á nýjan leik er atlaga að brothættum sjávarbyggðum landsins. Ákvörðunin er óskiljanleg m.t.t. fagurgala VG í kosningabaráttunni sl. haust. Flokkur fólksins fordæmir þessar hugmyndir sjávarútvegsráðherra.

Flokkur fólksins minnir á, að strandveiðikerfinu var komið á af hálfu ríkisstjórnar til að bregðast við áliti Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna, sem taldi kvótakerfið brjóta á mannréttindum sjómanna. Sjávarútvegsráðherra er með fyrirhuguðum breytingum að ganga gegn jafnræði til veiða sem strandveiðunum var ætlað að tryggja. Ráðherrann vill ganga hér svo miklu mun lengra í sérhagsmunagæslu fyrir kvótakónga en nokkurn skyldi gruna. Að sama skapi er einbeittur vilji ráðherrans að ganga freklega gegn hagsmunum strandveiðisjómanna og brothættum sjávarbyggðum.

Baráttan fyrir frjálsum strandveiðum er mannréttindabarátta. Barátta fyrir atvinnufrelsi og búseturétti. Takmarkanir á atvinnufrelsi mega ekki ganga lengra en nauðsyn krefur og gæta verður að meðalhófi og jafnræði. Sjávarútvegsráðherra gerir það ekki með því að taka aftur upp svæðaskiptingu og úthluta afla á hvert svæði. Þar er einungis verið að deila og drottna og valda togstreitu á milli svæða. Forsætisráðherra, sem skreytir sig sem baráttumann fyrir mannréttindum, hefur ekki lyft fingri þegar kemur að réttindum íbúa sjávarbyggðanna til strandveiða. Þar hafa máttlaus dygðaskreytingalög sætt forgangi, sem líklega mun aldrei reyna á.

Flokkur fólksins berst fyrir frjálsum handfæraveiðum. Strandveiðar eru grundvöllur fyrir tilvist sjávarbyggðanna í kringum landið. Algjört lágmark er að sú sátt sem náðist á síðasta kjörtímabili um núverandi strandveiðikerfi með 48 daga til veiða sé tryggð.

Flokkur fólksins leggur sérstaka áherslu á, að frjálsar strandveiðar munu ALDREI! ógna lífríkinu í kringum landið. Strandveiðar valda minnstu raski í hafrýminu og hafa minnsta kolefnisfótsporið. Aflahámark, sem takmarkar fiskveiðar, á aðeins að ná til þeirra veiða sem ógna fiskistofnum. Það gera handfæraveiðar svo sannarlega ekki. Strandveiðar eru þær veiðar sem hafa haldið lífi í sjávarbyggðum í kringum landið. Það er því algjörlega óverjandi að nokkur skuli láta sig detta í hug að ráðast að þessari lífsbjörg brothættra sjávarbyggða sem strandveiðarnar eru.

Íbúar sjávarbyggðanna eiga rétt á að nýta sjávarauðlindina þannig að fjölskyldurnar geti lifað af fiskveiðum. Sá réttur verður einungis tryggður með frelsi til strandveiða. Flokkur fólksins mun taka þátt í þeirri baráttu fyrir fólkið í landinu. Það er barátta fyrir atvinnufrelsi og búseturétti íbúa sjávarbyggðanna, þar sem byggð hefur alla tíð byggst á fiskveiðum.  Fólkið fyrst, svo allt hitt!

 

Inga Sæland

Höfundur er formaður Flokks fólksins.