Öruggt húsnæði fyrir alla

Lilja Rafney Magnúsdóttir

Öruggt húsnæði er hornsteinn jöfnuðar í samfélaginu enda er það mannréttindamál að eiga þak yfir höfuðið. Við Vinstri græn leggjum mikla áherslu á að á landinu öllu sé gott framboð af húsnæði bæði til leigu og til eignar á viðráðanlegu verði fyrir ungt fólk og tekjulægri. Á nýliðnum landsfundi VG voru húsnæðismál áberandi og samþykkt stjórnmálaályktun þar sem lögð er áhersla á áframhaldandi uppbyggingu félagslegs húsnæðis, bæta þurfi í stofnframlög til uppbyggingar almennra íbúða og efla það kerfi til framtíðar. Efla þurfi og stækka leigufélagið Bríeti sem er í eigu ríkisins og ætlað er að koma á öflugum og sanngjörnum leigumarkaði um land allt. Jafnframt eigi að bæta réttindi leigjenda og bjóða upp á öfluga upplýsingagjöf til þeirra á mörgum tungumálum.

Á þessu kjörtímabili hefur átt sér stað mikil uppbygging meðal óhagnaðardrifinna leigufélaga sem að býður fólki húsnæði á viðráðanlegu verði. Þannig á húsnæðiskostnaður að jafnaði ekki að vera umfram fjórðung tekna leigjanda og stendur til boða víða um land. Einnig komum við á hlutdeildarlánum sem nýtast ungu og tekjulægra fólki við fyrstu kaup hvar sem er á landinu þar sem ríkið á hlut í eigninni til að byrja með sem að hægt er að innleysa síðar. Í dag er algengt að ungt fólk treysti á að fá stuðning við útborgun í fyrsta húsnæði frá foreldrum sínum eða nánustu ættingjum. Þessari uppbyggingu þarf að halda áfram af krafti á komandi kjörtímabili. Að eiga öruggt þak yfir höfuðið eru hin sjálfsögðustu mannréttindi. Það skiptir einnig miklu máli að þessi uppbygging eigi sér stað um land allt svo allir landsmenn eigi sannanlega aðgang að mannsæmandi og öruggu húsnæði á sanngjörnu verði og þar munum við halda áfram að gera enn betur.

Veruleikinn er sá að á mörgum landsvæðum duga markaðslögmálin skammt og hefur uppbygging í húsnæðis verið í lágmarki og staðið í stað í ár og áratugi, með tilheyrandi stöðnun í atvinnuuppbyggingu og íbúaþróun. Lágt endursöluverð og lágt veðhæfi spila þar stórt hlutverk. Afleiðingin er mikill sogkraftur á höfuðborgarsvæðið og aðra þéttbýlisstaði á landinu í gegnum árin. Þess vegna munu hlutdeildarlán og almennar leiguíbúðir skipta miklu fyrir jákvæða íbúaþróun og öflugra atvinnulíf um land allt.

Það hvort fólk leigi sitt húsnæði eða eigi á að vera val þess sjálft. Hlutverk stjórnmálanna er að bjóða fólki upp á ólíka valkosti sem hentar því best hverju sinni. Sá valkostur á að vera til staðar hvort sem um er að ræða á Þingeyri, Skagaströnd eða í Kópavogi.

 

Lilja Rafney Magnúsdóttir

Höf. er formaður atvinnuveganefndar og þingmaður VG í Norðvesturkjördæmi