Opið fyrir umsóknir í tónlistar- og listnám

Sigfríður Björnsdóttir skólastjóri

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í tónlistar- og listnám í Borgarbyggð næsta vetur. Eldri nemendur í tónlistarnámi þurfa ekki að sækja um en þurfa að láta vita ef um breytingar er að ræða.

Tónlistarskóla Borgarfjarðar / Listaskóla Borgarfjarðar er ætlað að stuðla að öflugu tónlistar- og listalífi jafnframt því að vinna að aukinni hæfni, þekkingu og þroska einstaklinga. Á tónlistarbraut og listabraut er tekið mið af margvíslegum áhugasviðum nemenda, getu þeirra og þroska. Kennsluaðferðir og viðfangsefni eru fjölbreytt og sveigjanleg og hentar börnum, ungmennum og fullorðnum. Hlekk á umsóknarsíðu má finna á vefsíðu Borgarbyggðar og þar er hægt að sjá hvaða tónlistar- og listnám er í boði. Reynt er að mæta óskum um staðsetningu tónlistarnáms, en það er ekki hægt í öllum tilfellum. Listnámið fer að mestu fram í Borgarnesi.

Tónlistarnámið er fjölbreytt og fyrir alla aldurshópa. Elstu tveimur árgöngum í leikskóla býðst að taka þátt í forskóla tónlistarskólans. Hljóðfæranám er fjölbreytt og einnig er boðið upp á söng og stúdíónám. Stúdíónámið fer fram bæði á Kleppjárnsreykjum og í Borgarnesi. Kennt er í smærri hópum hjá byrjendum og í einkatímum hjá þeim sem það kjósa og eru búnir með byrjunaráfanga í 1-2 annir. Söngleikjadeildin er ætluð börnum frá 7 ára aldri og þar er unnið með söng- og leiklist og sýningar í lok hvorrar annar. Bæði forskólinn og söngleikjadeildin koma ítrekað fram á vegum sveitarfélagsins.

Á listnámsbrautinni er hægt að velja um þátttöku í leiklistarstarfi, dansþjálfun eða myndlist í mismunandi aldurshópum og eru allar námsleiðir ætlaðar öllum kynjum. Mikilvægt er að áhugasamir sæki um til að hægt verði að meta áhugann og sjá hvort lágmarksþátttaka næst á einstakar námsleiðir.

Leiklist verður kennd í samstarfi við Leynileikhúsið og leiklistarfélag MB og geta allir nemendur MB tekið þátt á forsendum skólans auk þess sem nemendur í 10. bekk geta sótt um að taka þátt. Um er að ræða undanfaranámskeið og svo sýningarvinnu og sýningar í MB á vorönn. Þeir nemendur í 10. bekk í grunnskólum Borgarbyggðar sem taka þátt í öllu verkefninu og skapa sér þannig matseiningar við nám í MB geta stundað leiklistarnámið án skólagjalda vegna samninga MB og Listaskólans. Þeir sem kjósa að taka aðeins undanfaranámskeiðið í leiklist greiða hóptímagjald í eina önn samkvæmt gjaldskrá Tónlistarskóla Borgarfjarðar. Leiklistarkennslan fer fram í MB seinnipartinn á miðvikudögum.

Boðið verður upp á danslistarnám fyrir 10-12 ára nemendur af öllum kynjum í samstarfi við Dansgarðinn. Kenndir verða hóptímar í Borgarnesi og undir lok annar verður æft og sýnt með hópum í Dansgarðinum í Reykjavík. Um er að ræða stórar jóla- og vorsýningar í Borgarleikhúsinu. Danslistarnámið felst í grunnkennslu í ballet og skapandi hreyfingu/nútímadans.

Boðið verður upp á myndlistarnámskeið í samvinnu við Myndlistaskólann í Reykjavík og er námið með sama sniði og þar. Haustið 2023 verður boðið upp á námskeið í teikningu fyrir 13-16 ára nemendur  og fer námið fram að mestu í Borgarnesi.

Tímasetningar í listnámsáföngum liggja ekki fyrir en mikilvægt er að áhugasamir sæki um þannig að hægt sé að meta áhugann og sjá hvort lágmarksþátttaka næst. Miðað er við minnst 5-8 í hverjum hópi.

Gjaldskrá listnámshópa er sú sama og fyrir hóptíma í tónlistarskólanum. Sjá gjaldskrá undir Skólaþjónusta á vef Borgarbyggðar.

Við hlökkum til að sjá nemendur á öllum aldri!

 

Sigfríður Björnsdóttir, skólastjóri Tónlistarskóla Borgarfjarðar