
Nýtt fyrirkomulag í leikskólum í Borgarbyggð
Inga Berta Bergsdóttir
Nýtt fyrirkomulag í leikskólum Borgarbyggðar tók gildi síðastliðið haust og hefur þegar haft jákvæð áhrif fyrir bæði foreldra og starfsfólk. Samkvæmt breytingunum eru fyrstu sex klukkustundirnar í leikskóla gjaldfrjálsar. Markmið þessarar breytingar er tvíþætt; annars vegar að koma til móts við fjölskyldur og hins vegar að styðja við styttingu vinnuvikunnar, sem felur í sér að vinnuvika starfsfólks fari ekki yfir 36 klukkustundir.
Árið 2020 flutti ég aftur heim í Borgarnes eftir dvöl á Akranesi. Eitt af því sem togaði mig sérstaklega heim var leikskólaumhverfið. Í Borgarbyggð gátu börnin mín hafið leikskólagöngu við 12 mánaða aldur, sem leysti þann vanda sem oft skapast við að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskólapláss. Á Akranesi hafði ég upplifað hversu flókið það getur verið þegar barn kemst ekki inn fyrr en við 18 mánaða aldur.
Foreldrar geta haft áhrif
Árið 2020 tók ég sæti í foreldraráði leikskólans Klettaborgar og starfaði þar til ársins 2025. Á þeim tíma stóð yfir innleiðing styttingar vinnuvikunnar og unnið var markvisst að því að finna lausnir sem bæði kæmu til móts við þarfir starfsfólks og tryggðu góða þjónustu fyrir foreldra og börn. Í þeirri vinnu var einnig leitað leiða til að bregðast við réttindum starfsfólks, meðal annars varðandi uppsafnað sumarfrí.
Ég lagði þar fram hugmynd sem hafði áður verið innleidd á Akranesi, svokallaða „gjaldfrjálsa fimmtu viku“ í sumarfríi. Hún felur í sér að foreldrar geta valið að taka auka viku í sumarfríi fyrir barn sitt, annaðhvort fyrir eða eftir hefðbundið sumarfrí, gegn því að skrá það með fyrirvara. Þannig geta stjórnendur skipulagt mönnun betur og lækkað kostnað fyrir fjölskyldur. Hugmyndinni var vel tekið af sveitarstjórn og hún innleidd á skömmum tíma.
Mannúðlegri stefna
Á síðustu árum hefur fyrirkomulagið þróast enn frekar til betri vegar og nær nú einnig til daga á milli jóla og nýárs, dimbilviku og vetrarfrís í grunnskólum. Breytingin felst í því að foreldrar þurfa nú að tilkynna fyrirfram ef börn mæta þessa daga, í stað þess að skrá þau sérstaklega í frí. Þessir dagar hafa jafnan verið frábrugðnir hefðbundnum leikskóladögum, með færri börn í vistun.
Áður fyrr voru þó flest börn skráð til að halda möguleikanum opnum, þrátt fyrir að færri mættu í raun. Þetta hafði í för með sér að leikskólar voru fullmannaðir, gert var ráð fyrir fullum fjölda í matarinnkaupum og jafnvel þurfti að hafna beiðnum starfsfólks um frí til að mæta mögulegri mönnunarþörf. Á sama tíma nýta margir foreldrar þessa daga til ferðalaga með fjölskyldunni þar sem grunnskólar eru lokaðir
Í dag er betri nýting á mannauði, mannúðlegri stefna og betri rekstur á leikskólum. Ég fagna þessum breytingum, bæði sem fyrrverandi starfsmaður leikskóla og foreldri þriggja barna. Til þess að tryggja áframhaldandi góða leikskólaþjónustu er mikilvægt að hlúa að starfsfólki, virða réttindi þess og skapa vinnuumhverfi sem styður við jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Sterk og vel mönnuð leikskólasamfélög eru forsenda þess að börnin okkar fái þá umönnun og menntun sem þau eiga skilið.
Við í Framsókn erum stolt af þeim breytingum sem gerðar voru á síðasta kjörtímabili og óskum eftir umboði til þess að fá að starfa áfram fyrir barnafjölskyldur í sveitarfélaginu, með það að markmiði að halda áfram að gera betur. Þetta snýst um samfélagið!
Inga Berta Bergsdóttir
Höfundur skipar 10. sæti á lista Framsóknar í sameiginlegu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps.