Nýsköpun er besta byggðastefnan

Lilja Björg Ágústsdóttir

Tækifærin þarf ekki að flytja út á land – þau verða þar til!

 

Í áratugi hafa byggðamál á Íslandi að miklu leyti snúist um innviði. Við höfum byggt mannvirki, vegi, hafnir, raforkukerfi og fjarskiptatengingar til að tryggja að fólk geti búið og starfað um allt land. Sú uppbygging hefur verið nauðsynleg og hún hefur skilað miklum árangri.

En þótt góðir innviðir séu grundvöllur framfara duga þeir ekki einir og sér lengur. Lagður vegur skapar ekki starf. Ljósleiðari stofnar ekki fyrirtæki. Húsnæði eitt og sér fær ungt fólk ekki til að setjast að í heimabyggð.

Það sem mun ráða mestu um framtíð dreifbýlisins á næstu áratugum er hæfni okkar til að skapa verðmæti úr hugmyndum, þekkingu og þeim auðlindum sem fyrir eru. Þess vegna tel ég að nýsköpun sé hið nýja byggðamál.

Í Dalabyggð höfum við á undanförnum árum lagt áherslu á að horfa ekki eingöngu á það sem þarf að laga eða byggja upp heldur einnig á það hvernig við getum skapað ný verðmæti úr þeirri þekkingu, reynslu og auðlindum sem þegar eru til staðar. Stór þáttur í breyttri hugsun er verkefnið DalaAuður sem er samstarfsverkefni Dalabyggðar, Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi og Byggðastofnunar með það að markmiði veita byggðalaginu innspýtingu með því að hvetja til nýsköpunar og efla frumkvæði íbúa í samfélagslegum verkefnum.

Með stuðningi við fjölbreytt verkefni, allt frá atvinnu- og vöruþróun til menningar, samfélagsverkefna og nýrra lausna í dreifbýli, hefur verkefnið sýnt að nýsköpun snýst ekki eingöngu um tækni heldur ekki síður um fólk, staði og framtíðarsýn. Frá upphafi hafa verið veittir styrkir til vel yfir hundrað verkefna sem hafa auðgað bæði atvinnu- og menningarlíf sveitarfélagsins og skapað farveg fyrir fjölbreytt frumkvæði íbúa.

Meðal þeirra verkefna sem hafa fengið stuðning eru verkefni á sviði umhverfismála, landbúnaðar, heilbrigðismála, menntunar og varðveislu menningarminja en áhrif verkefnisins sjást ekki síst í atvinnulífinu. Frá árinu 2020 hefur grænmetisrækt í Dölum aukist verulega fyrir almennan markað, en ekki eingöngu til heimilisnota. Jafnframt hefur úrvinnsla og fullvinnsla landbúnaðarafurða aukist til muna, meðal annars með aukinni kjötvinnslu, heimavinnslu afurða og ullarvinnslu. Íbúar hafa einnig styrkt stöðu sína á markaði með markaðssókn og betra aðgengi að staðbundinni söluvöru.

Þá hafa fjölmörg verkefni fengið stuðning sem skapa grundvöll fyrir frekari rannsóknir, vöruþróun og markaðsprófanir. Þar má nefna frumkvæði á sviði fræframleiðslu, plönturæktar, hvítlauksræktunar og nýtingar ýmissa staðbundinna auðlinda. Slík verkefni geta þróast í nýjar afurðir, aukið verðmætasköpun og skapað ný atvinnutækifæri til framtíðar. Skilgreiningin á „nýsköpun“ þarf einnig að vera mun víðtækari en svo að aðeins sé horft til hefðbundinna tækninýjunga eða byltingarkenndra hugmynda. Horfa þarf á nýsköpun í svæðisbundnu samhengi og meta hana út frá þeim aðstæðum sem eru fyrir hendi á hverjum stað. Fyrir 10-15 árum hefði til dæmis fáum dottið í hug að stunda ræktun á hvítlauk eða kjúklingaframleiðslu í Dölum, en það er raunveruleikinn í dag. Þótt slík starfsemi sé ekki ný af nálinni á landsvísu hefur hún ótvírætt nýnæmisgildi í Dölunum. Hún hefur skapað ný tækifæri, aukið verðmætasköpun og styrkt atvinnulíf svæðisins.

Kannski eru þó mikilvægustu áhrifin ekki eingöngu mæld í fjárhagslegum árangri eða fjölda verkefna. Með þátttöku í DalaAuði hafa margir íbúar öðlast aukið sjálfstraust til að sækja styrki, leita sér ráðgjafar og fylgja hugmyndum sínum eftir. Verkefnið hefur þannig stuðlað að menningu þar sem frumkvæði er hvatt áfram og fólk finnur stuðning til að láta reyna á hugmyndir sínar.

Dalamenn hafa jafnframt sýnt að samstaða og jákvæðni eru mikilvægir þættir í nýsköpun. Fólk gleðst yfir velgengni annarra og verður oft öflugasti kynningaraðili þeirra verkefna sem verða til í héraðinu. Þannig styrkir árangur eins verkefnis oft grundvöll fyrir önnur og skapar jákvæða keðjuverkandi þróun innan samfélagsins.

Ég tel að það sé engin tilviljun að Dalabyggð hefur á síðustu árum náð að snúa við neikvæðri íbúaþróun sem hafði einkennt sveitarfélagið, eins og mörg önnur í svipaðri stöðu um langt skeið. Frá því um 2021 hefur íbúum í Dalabyggð fjölgað jafnt og þétt en fjöldi íbúa í Dalabyggð er nú sögulegu hámarki það sem af er þessum áratug. Samkvæmt Þjóðskrá eru nú 677 íbúar í sveitarfélaginu sem gerir 7,5% fjölgun á sl. sex árum. Eins má merkja í íbúakönnunum aukna jákvæði og bjartsýni en m.a. var Dalabyggð hástökkvari sveitarfélaga í íbúakönnun landshlutanna 2023 varðandi búsetuskilyrði. Jákvæðni, drifkraftur og bjartsýni laða að fólk og þessi fjölgun er skýrt merki um að Dalabyggð er í sókn.

Þess vegna tel ég að við þurfum að breyta áherslum í umræðunni um byggðamál en byggðamál eru svo miklu meira en þessir hefðbundu áþreifanlegu innviðir. Við eigum að sjálfsögðu áfram að fjárfesta í vegum, fjarskiptum, mannvirkjum og öðrum innviðum. En við þurfum jafnframt að fjárfesta í hugmyndum, frumkvæði og fólki.

Stærsta vannýtta auðlind Íslands til næstu ára er mögulega ekki orkan, fiskurinn eða ferðamennirnir. Hún er fólkið sem býr um allt land, þekking þess og hugmyndir. Ef við ætlum að byggja sterkt Ísland til framtíðar verðum við að tryggja að nýsköpun sé ekki bundin við ákveðin póstnúmer heldur geti þrifist hvar sem góðar hugmyndir kvikna.

 

Lilja Björg Ágústsdóttir

Höf. er sveitarstjóri í Dalabyggð