Ný velferðarstefna fyrir aldraða

Guðjón S Brjánsson

Í lok mars lögðum við nokkrir þingmenn Samfylkingarinnar fram þingsályktunartillögu um nýja velferðarstefnu fyrir aldraða. Þar er lagt til að snúið verði frá ríkjandi viðhorfum í þjónustu við aldraða og markvisst horfið frá einhliða stofnanasýn.

Með tillögunni er lögð höfuðáhersla á að hver einstaklingur eigi þess kost að búa á eigin heimili til æviloka með persónulegum stuðningsúrræðum við hæfi og samkvæmt eigin óskum.

Ný sýn stjórnvalda auðveldi eldra fólki umskipti í aðgengilegt húsnæði með virkum, þekktum og raunhæfum leiðum. Stefnuleysi og takmörkuð framtíðarsýn hefur ríkt í málaflokknum og brýnt að stjórnvöld stigi skref í þessa átt, sýni frumkvæði, forgangsraði með nýjum hætti og greiði með beinni aðkomu fyrir stórauknu framboði á hentugum og öruggum búsetumöguleikum.  Beinir hvatar geta m.a. falist í fjárhagslegri fyrirgreiðslu þar sem það á við.  Allt til þess að tóna niður áralanga og kostnaðarsama stofnanavistun.

Í þessu sambandi verði fjölmargir möguleikar á sviði heilbrigðis- og velferðartækni nýttir eins og þekkt er víða um lönd.  Sérstakt þróunarverkefni verði sett á laggirnar varðandi þennan þátt.

Að þessu beinist okkar sýn í Samfylkingunni og áskoranir gagnvart fagfólki sem velur sér öldrunarþjónustu sem starfsvettvang eru talsverðar. Til þess að tryggja framkvæmd þessara veigamiklu áherslubreytinga er mikilvægt að kveikja áhuga og skilning víða. Lykilatriði er fá til samstarfs bæði fagfólk og annað sérhæft starfsfólk og tryggja þjálfun og innleiðingu í samræmi við áherslur stjórnvalda um einstaklingsbundna þjónustu á eigin heimili.

Liður í umbreytingarferlinu verði jafnframt endurskoðun á fjárhagslegri umgjörð málaflokksins, þ.m.t. fjármögnun stofnanavistunar og greiðsluþátttöku einstaklinga.

Markmið um persónulegt og fjárhagslegt sjálfræði og sjálfstæði verði virt í öllu tilliti.

Endurskoðun almannatryggingakerfisins er síðan sjálfstætt og brýnt verkefni sem æskilegt er að unnið verði að samhliða. Þar eru álitaefnin mörg, m.a. um vaxandi áhrif lífeyrissjóðsgreiðslna hjá eldra fólki og tengsl þeirra við greiðslur almannatrygginga.

Hluti af verkefninu verði þróun á reiknilíkani sem geri sveitarfélögum kleift að veita viðeigandi, markvissa og breytilega þjónustu eftir þörf og aðstæðum hverju sinni.

Með því að undirstrika viðhorfs- og stefnubreytingu verði lög um málefni aldraðra nr. 125/1999 endurskoðuð í því augnamiði að þau verði felld úr gildi.

Mikilvægt er að vandað verði til undirbúnings og faglegur og fjárhagslegur ávinningur gerður mælanlegur, metinn reglulega og verkefninu skipt í tímasetta áfanga. Það á bæði við um þá margvíslegu þætti sem snúa að ríkisvaldinu og sveitarfélögum en ekki síst að þeim sem eiga mestra hagsmuna að gæta, hinum öldruðu sjálfum.

Um þessi atriði fjallar hófstillt en á sama tíma róttæk og löngu tímabær þingsályktunartillaga okkar í Samfylkingunni, sem nánar má lesa um á  https://www.althingi.is/altext/pdf/151/s/1199.pdf

 

Guðjón S. Brjánsson

Höf. er þingmaður Samfylkingar í NV kjördæmi.