Ný menningarstefna Akraneskaupstaðar

Guðríður Sigurjónsdóttir

Á fundi bæjarstjórnar 14. apríl sl. var samþykkt ný menningarstefna fyrir Akraneskaupstað. Menningar- og safnanefnd hefur unnið að endurskoðun stefnunnar á liðnu kjörtímabili, en beðið var með að ljúka verkinu þar til stjórnsýslubreytingar tækju gildi. Nefndin skilaði tillögu sinni til skóla- og frístundaráðs sem lagði blessun sína yfir hana og vísaði henni til endanlegrar samþykktar í bæjarstjórn.

Á Akranesi er lifandi og metnaðarfullt menningarlíf þar sem öflug grasrót gegnir lykilhlutverki. Fjölbreytt starfsemi listafólks, félagasamtaka og stofnana skapar frjóan jarðveg fyrir nýjar hugmyndir og viðburði sem höfða til breiðs hóps bæjarbúa. Menningin er sýnileg í daglegu lífi, hvort sem er á skipulögðum viðburðum eða með sjálfsprottnu framtaki íbúa.

Menningarstefnunni er ætlað að vera skýr rammi utan um þetta öfluga starf, styðja við áframhaldandi þróun og efla samstarf þeirra sem koma að menningarmálum í bænum, með það að markmiði að Akranes verði áfram kraftmikill vettvangur menningar og sköpunar.

Nú er komið að ákveðnum vatnaskilum í menningarmálum á Akranesi. Á 1426. fundi bæjarstjórnar þann 15. janúar sl. var samþykkt nýtt skipurit fyrir Akraneskaupstað sem tekur gildi við upphaf nýs kjörtímabils. Með þeim breytingum verður skóla- og frístundasvið að mennta- og menningarsviði. Menningar- og safnanefnd verður lögð niður og málefni hennar færast undir hið nýja svið.

Ég hef gegnt formennsku í menningar- og safnanefnd á þessu kjörtímabili og kveð því störf mín í þessum málaflokki fyrir bæinn síðastliðin 14 ár þakklát og sátt. Með mér í nefndinni hefur starfað einstaklega öflugur og samstilltur hópur fólks sem hefur lagt sig fram af heilindum og metnaði við að móta ramma og styðja við menningarlíf bæjarins. Verkefnastjóri nefndarinnar, Vera Líndal Guðnadóttir, hefur leitt starfið af festu, fagmennsku og drifkrafti, kann ég henni bestu þakkir fyrir.

Það hefur verið heiður að fá að stýra þessum málaflokki. Menningarlífið á Akranesi blómstrar sem aldrei fyrr, þátttaka bæjarbúa hefur aukist, jákvæðni er ríkjandi og skapandi starf sprettur upp víða. Sjálfsprottnir viðburðir hafa orðið sífellt fleiri og má nefna að Vökudagar hafa vaxið og dafnað með hverju árinu og fjöldi viðburða aldrei verið meiri.

Að lokum vil ég þakka fyrir mig og óska Skagamönnum til hamingju með nýja menningarstefnu. Ég færi jafnframt öllum þeim sem komið hafa að mótun menningarmála bæjarins með mér undanfarin ár, kærar þakkir fyrir gott og heiðarlegt samstarf þvert á flokkapólitík. Þá vil ég einnig þakka forstöðumönnum menningarstofnana bæjarins sem og fulltrúum Hvalfjarðarsveitar fyrir ánægjulegt samstarf.

 

Guðríður Sigurjónsdóttir

Höf. er formaður menningar- og safnanefndar Akraness