
Næstu skref fyrir Akranes
Rúnar Ágústsson
Akranes er sterkt og gott samfélag. Félagslegir innviðir og skólastarf bæjarins eru með því besta sem gerist á landinu. Það er árangur sem við eigum að vera stolt af og mikilvægt að halda áfram því öfluga starfi.
En sterk staða í dag tryggir ekki sjálfkrafa sterka stöðu á morgun. Nú stöndum við frammi fyrir tækifærum til að taka næsta skref og styrkja grunninnviði bæjarins, styðja betur við atvinnuuppbyggingu og byggja upp enn öflugra samfélag til framtíðar.
Grunninnviðir hafa of lengi setið á hakanum. Það hefur haft áhrif og í sumum tilfellum hafa tækifæri runnið okkur úr greipum. Á sama tíma er samkeppnin hörð. Sveitarfélög í kringum höfuðborgarsvæðið keppast um að laða að fólk, fyrirtæki og fjárfestingu og þar skipta innviðir sköpum.
Ef Akranes ætlar að standa jafnfætis öðrum sveitarfélögum þurfum við að bregðast við og nýta þau tækifæri sem nú eru til staðar.
Efling grunninnviða snýst ekki um eitt verkefni heldur skýra sýn. Hún felst í að tryggja aðgengi að byggingarhæfum lóðum, bæta gatnakerfi og samgöngur, styrkja orku- og veitukerfi og skapa skýran ramma fyrir uppbyggingu atvinnusvæða.
Þetta eru grunnforsendur þess að atvinnulíf geti vaxið og að fjölskyldur velji sér búsetu. Þar skiptir máli að innviðir séu til staðar, skipulag sé skýrt og uppbygging gangi hratt og örugglega fyrir sig.
En uppbygging snýst ekki aðeins um innviði heldur líka um hvernig við vinnum.
Stjórnsýslan þarf að vera virkur þátttakandi í uppbyggingu, ekki hindrun. Með því að stíga skref í átt að þjónandi forystu skapast umhverfi þar sem verkefni komast hraðar af stað og samstarf við atvinnulíf og íbúa verður markvissara og skilvirkara.
Stjórnsýslan og fólkið verða að vinna náið saman til að skapa raunveruleg tækifæri til vaxtar og framfara.
Framundan eru spennandi tímar. Með því að byggja áfram á þeim styrkleikum sem við höfum og ráðast í markvissa eflingu grunninnviða getum við styrkt Akranes enn frekar sem stað til að búa, starfa og byggja upp framtíð.
Rúnar Ágústsson
Höf. er í 9. sæti D-lista í komandi sveitarstjórnarkosningum á Akranesi.