
Metfjöldi annað árið í röð
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
Annað fjölmennasta skólaár í sögu Háskólans á Bifröst er að ganga í garð. Nú í haust setjast 1.896 nemendur að námi við háskólann, þar af eru 826 nýskráðir. Er það metfjöldi nemenda, annað árið í röð. Á sama tíma í fyrra voru 1.980 nemendur við háskólann.
Við Háskólann á Bifröst eru þrjár deildir, viðskiptadeild, félagsvísindadeild og lagadeild, en auk fræðasviðanna þriggja er boðið upp á háskólagátt og endurmenntun. Allar deildir háskólans leggja áherslu á viðskipti og stjórnun með áherslu á tengsl við atvinnulífið.
Viðskiptadeild hefur vaxið hratt á undanförnum árum, er með 57% nemendafjöldans, 1091 nemanda, og er nú ein stærsta viðskiptadeild landsins. Fjölbreytt stjórnunarnám á meistarastigi er fjölmennasta námið við deildina.
Í félagsvísindadeild er skráður 491 nemandi þetta haustið. Deildin býður ýmsar námsleiðir í grunn– og meistaranámi sem ekki eru í boði við aðra háskóla. Má nefna meistaranám í áfallastjórnun, samskiptastjórnun og menningarstjórnun, auk grunnnáms í skapandi greinum, öryggisfræðum og almannavörnum, ásamt öðrum hefðbundnari námslínum.
Við lagadeild er boðið upp á grunn- og meistaranám í viðskiptalögfræði, sem fléttar saman kjarnagreinar lögfræðinnar og þær greinar viðskiptafræði sem tengjast rekstri og fjármálum. Nú í haust eru 240 nemendur skráðir í lagadeild. Er það fjölgun milli ára sem má að hluta rekja til nýrrar og spennandi námsleiðar, grunndiplómu í leiðtoganámi í hafgæslu. Námið er þverfaglegt samstarf milli félagsvísindadeildar og lagadeildar og var þróað í nánu samstarfi við Landhelgisgæsluna og Tækniskólann.
Að auki eru 74 skráðir nemendur í háskólagátt og endurmenntun.
Háskólinn á Bifröst sérhæfir sig í fjarnámi sem stendur nemendum til boða á haust-, vor- og sumarönnum. Aðsóknartölur sýna að sá valkostur laðar að háskólanum fjölda nemenda sem velja umfram annað að stunda háskólanám í fjarnámi með þann sveigjanleika sem sú leið býður fólki. Nemendur háskólans koma úr öllum landshlutum, einnig af meginlandi Evrópu og Bandaríkjunum.
Forysta og mannauðsstjórnun er áfram vinsælasta námsleið háskólans í meistaranámi líkt og verið hefur undanfarin ár. Nýtt meistaranám í fjármálastjórnun fær einnig frábærar viðtökur og augljóst að eftirspurn er eftir meistaranámi á þessu sviði, því færri hafa komist að en vildu.
Það er því bjartsýni við völd hjá stjórnendum og starfsfólki Háskólans á Bifröst sem iðar af lífi. Er mikil tilhlökkun að hefja skólaárið með einum stærsta nemendahópi í sögu skólans.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
Höf. er rektor Háskólans á Bifröst