Menntaskóli Borgarfjarðar spilar sóknarleik

Bragi Þór Svavarsson

Á síðustu árum hefur Menntaskóli Borgarfjarðar tekið stór skref í þróun náms og kennslu og aðbúnaði nemenda. Fjölgun nemenda, öflug skólaþróun og nýir nemendagarðar eru allt merki um skóla sem hefur fest sig í sessi sem einn af mikilvægustu þáttum þess að búa í Borgarbyggð.

Haustið 2020 var á fundi stjórnar MB fyrst rætt um mikilvægi þess að styðja við vöxt MB með því að geta boðið nemendum upp á betri búsetukost í Borgarnesi. SSV gerði skýrslu um möguleika fyrir hendi og ýmsir kostir skoðaðir á næstu árum, að lokum var gengið til samninga við Brákarhlíð fasteignafélag ehf um kaup á neðstu hæðinni að Borgarbraut 63.

Í haust verða svo teknir í notkun nýir nemendagarðar við skólann. Þar er boðið upp á nútímalegar einstaklings- og tveggja manna íbúðir fyrir nemendur með sér baðherbergi og eldhúsi. Það er stórt skref fyrir skólann en ekki síður fyrir samfélagið allt, því að gott aðgengi að húsnæði er ein mikilvægasta forsenda þess að ungt fólk geti valið sér að koma hingað í Borgarnes í framhaldsskóla.

Á komandi skólaári munu um tuttugu nýir staðnemar utan Borgarbyggðar hefja nám við skólann og um 35% staðnema við Menntaskóla Borgarfjarðar koma nú utan sveitarfélagsins. Flest hver búa í Borgarnesi á meðan á námi stendur, taka þátt í íþrótta- og menningarlífi og verða hluti af samfélaginu. Það eru verðmæti sem erfitt er að mæla í krónum en skiptir miklu fyrir samfélagið allt.

Þegar rætt er um innviði framtíðar er gjarnan horft til vega, raforkuframleiðslu eða skipulagsmála. Öflugur framhaldsskóli er ekki síður mikilvægur innviður. Hann laðar að ungt fólk, eykur fjölbreytni í samfélaginu og skapar forsendur fyrir áframhaldandi uppbyggingu. Menntun er ekki aðeins þjónusta við nemendur heldur fjárfesting í framtíð byggðarlagsins.

Sú fjárfesting skilar sér með margvíslegum hætti. Árlega er rekstrarframlag frá ríki sem stendur undir starfsemi Menntaskóla Borgarfjarðar. Þeir fjármunir verða að launum 21 starfsmanns, húsaleigu í Hjálmakletti sem greidd er sveitarfélaginu, og kaupum á fjölbreyttri þjónustu og vörum í nærumhverfinu. Skólinn er því ekki aðeins menntastofnun heldur jafnframt stór vinnustaður í sveitarfélaginu.

Nemendum í fullu námi hefur fjölgað um 50% frá árinu 2019 og eru nú um 150 talsins. Í vor brautskráðist jafnframt stærsti árgangur í sögu skólans. Þessi þróun endurspeglar aukið traust til skólans og þá markvissu vinnu sem hefur átt sér stað við að þróa námið í takt við þarfir framtíðarinnar. Sú vinna hefur vakið athygli langt út fyrir Borgarfjörð. Skólinn hlaut hvatningarverðlaun Íslensku menntaverðlaunanna fyrir skólaþróunarverkefnið Menntun fyrir störf framtíðar, þar sem lögð er áhersla á nýsköpun, STEAM-menntun, skapandi hugsun og hæfni sem atvinnulíf og samfélag kalla sífellt meira eftir.

Nýverið var einnig skrifað undir fimm ára þjónustusamning við Mennta- og barnamálaráðuneytið. Slíkur samningur veitir mikilvæga festu í rekstri skólans og skapar betri forsendur til að halda áfram þeirri uppbyggingu sem átt hefur sér stað undanfarin ár. Það skiptir máli fyrir nemendur, starfsfólk og samfélagið allt að geta horft lengra fram í tímann.

Þessi árangur verður ekki til af sjálfu sér. Hann byggir á framsýni þeirra sem lögðu grunn að Menntaskóla Borgarfjarðar og trúðu því að öflugur framhaldsskóli ætti heima í Borgarbyggð. Hann byggir einnig á því góða samstarfi sem ríkt hefur við ríki, atvinnulífið og Borgarbyggð.

Sérstaklega ber að þakka sveitarfélaginu fyrir öflugan stuðning við uppbyggingu nýrra nemendagarða, sem verða eitt mikilvægasta framfaraskref skólans frá stofnun hans.

Þeir sem stýrt hafa málum í sveitarfélaginu gera sér grein fyrir því að þegar horft er til þeirrar þekkingar sem verður til, þeirra tækifæra sem skapast fyrir ungt fólk og þeirra verðmæta sem skólinn skilar inn í samfélagið á hverju ári, er ljóst að öflugur framhaldsskóli er ein besta fjárfesting sem sveitarfélag getur átt.

Menntaskóli Borgarfjarðar er í sókn. Sú sókn snýst ekki eingöngu um fleiri nemendur eða stærri húsakost heldur um að skapa samfélag þar sem ungt fólk vill búa, læra og byggja framtíð sína. Það er verkefni sem skiptir Borgarbyggð alla máli.

Það verður einstaklega spennandi að verða vitni að því í haust þegar fjöldi nemenda sem hingað sækir nám, fara að taka þátt í samfélaginu á einn eða annan hátt við leik og störf. Ég er þess fullviss að við sem búum í Borgarbyggð tökum vel á móti þessu unga fólki.

 

Bragi Þór Svavarsson

Höf. er skólameistari Menntaskóla Borgarfjarðar