Margir nýta tímann til að læra óháð stað og stund!

Fjölbrautaskólinn við Ármúla

Í Fjölbrautaskólanum við Ármúla er boðið upp á fjarnám allt árið. Kennslan hefst 25. janúar og lýkur með lokaprófum í maí.

Í samtali við Hildi Jóhannsdóttur og Steinunni Hafstað fjarnámsstjóra Fjölbrautaskólans við Ármúla segja þær að meginmarkmið fjarnámsins er að gefa sem flestum kost á að stunda framhaldsskólanám óháð stað og stund, aldri og aðstæðum. Þannig er hægt að brúa bilið hjá þeim sem kjósa að taka upp þráðinn á ný eftir hlé frá námi og að gefa nemendum kost á sveigjanleika í námi til að stytta sér leið að lokaprófi. Það er hægt að ljúka stúdentsprófi af öllum bóknámsbrautum í fjarnámi og að ljúka í fjarnámi þeim bóklegu greinum á heilbrigðisstarfsbrautum skólans sem eru til þess fallnar.

Gæðavottað fjarnám

Hildur Jóhannsdóttir bendir á að sem ríkisrekinn framhaldsskóli heyrir skólinn undir Menntamálaráðuneytið og er allt námið samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla. Fjarnámið, sem er gæðavottað af iCert, er fyrst og fremst hugsað sem sjálfsnám undir handleiðslu kennara. Kennslan fer fram í notendavænu námsumhverfi. Kennarar skólans eru þaulreyndir, búa yfir mikilli reynslu af námsumhverfinu og alltaf tilbúnir að aðstoða.

Fjöldi fólks hefur stundað fjarnám í FÁ annaðhvort samhliða vinnu eða með námi.  Þetta kemur mörgum til góða svo sem þeim sem eru að flýta fyrir sér í námi, að endurtaka áfanga eða að undirbúa sig undir frekara nám á háskólastigi. Nemendur sem stunda nám í öðrum framhaldsskólum geta tekið áfanga í fjarnámi og fengið þá metna. Það er einnig algengt að fólki skrái sig í áfanga sem tengjast þeirra áhugasviði, t.d. í tungumálum, sögu eða bókmenntum, án þess að vera í skipulögðu námi, segja þær Hildur og Steinunn að lokum.

Skráning á vorönnina  stendur nú yfir og lýkur 18. janúar næstkomandi og er hún rafræn á heimasíðu skólans: http://www.fa.is/fjarnam/skraning-i-fjarnam/. Hér er hægt að sjá hvaða áfangar eru kenndir á vorönninni: https://www.fa.is/fjarnam/afangar-i-bodi/fjarnam/.