
Mánuður til kosninga!
Líf Lárusdóttir
Í dag er sléttur mánuður til sveitarstjórnarkosninga. Fram undan er því gríðarlega mikilvægt tímabil í okkar lýðræðislega samfélagi. Fyrir liggur að fimm flokkar bjóða fram lista á Akranesi í komandi kosningum. Því er ljóst að íbúar munu hafa raunverulegt val um ólíkt fólk, áherslur, sýn og leiðir til framtíðar.
Kosningar snúast þó alls ekki eingöngu um það sem gerist á kjördag. Þær snúast ekki síður um tímann fram að þeim. Það er því einmitt núna sem umræðan þarf að vera til staðar, opin og uppbyggileg. Núna er tíminn til að hitta frambjóðendur, spyrja spurninga, kalla eftir skýrum svörum, leggja fram hugmyndir og taka þátt í samtalinu um framtíð samfélagsins.
Mikilvægi þess að íbúar taki þátt í málefnavinnu verður vart ofmetið. Sterkt samfélag byggir á virkri þátttöku fólksins sem þar býr. Þegar íbúar láta sig málin varða, mæta á fundi, taka þátt í umræðu, senda ábendingar eða ræða sínar áherslur við frambjóðendur, þá verður til betri og skýrari grunnur fyrir ákvarðanatöku.
Þessi mánuður fram undan er tækifæri fyrir íbúa til að móta umræðuna, og hafa áhrif á stefnu flokkanna sem bjóða fram. Svo þarf að viðhalda þessu samtali á kjörtímabilinu og það höfum við gert, meðal annars með reglulegu samtali á bæjarmálafundum okkar.
Mitt framboð er farið af stað af fullum krafti og við á D-listanum ætlum að nýta næstu vikur vel til að hlusta, ræða og hitta fólk. Ég vil þakka þeim fyrirtækjum, íbúum, stofnunum og félagasamtökum sem hafa þegar tekið á móti okkur og átt við okkur góð samtöl. Það er bæði dýrmætt og hvetjandi. Ég hlakka mikið til að hitta enn fleiri á næstu vikum, heyra þeirra sjónarmið og halda áfram að vinna af heilindum og metnaði fyrir samfélagið okkar.
Ég er ótrúlega stolt af fólkinu í mínum frábæra hópi, sem á síðustu vikum hefur sýnt mér hvað þau eru áhugasöm og tilbúin til að vinna af miklum krafti fyrir bæinn sinn.
Í kvöld opnum við dyrnar að kosningaskrifstofunni okkar á Stillholti, þar sem frambjóðendur kynna sig og bjóðum við íbúa hjartanlega velkomna til samtals við okkur í kvöld, eða á næstu vikum.
Líf Lárusdóttir
Höf. er oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akranesi