Málefni fatlaðra

Helga Björg og Guðný Sara

Málefni fatlaðs fólks þurfa að vera í stöðugri þróun með áherslu á aukna virkni, fleiri tækifæri og fjölbreyttari úrræði. Mikilvægt er að skapa fleiri atvinnumöguleika fyrir fatlað fólk og mæta ólíkum þörfum þess á vinnumarkaði, þar sem hver einstaklingur hefur mismunandi styrkleika og stuðningsþarfir. Með aukinni þátttöku í atvinnulífi eykst sjálfstæði, lífsgæði og samfélagsþátttaka.

Jafnframt þarf að efla aðhald og eftirfylgni í þjónustu við fatlað fólk, meðal annars varðandi þrif og hreinlæti. Virðing felst í því að sinna grunnþörfum vel án þess að fara yfir mörk einstaklinga. Sumir þurfa meiri stuðning og reglulegt eftirlit til að tryggja öryggi og vellíðan í daglegu lífi. Þá þarf að fjölga úrræðum, svo sem með aukinni frístundastarfsemi fyrir ungmenni og skammtímadvöl fyrir fjölskyldur og einstaklinga sem þurfa stuðning.

Leggjum áherslu á faglærða

Í dag eru engar sérstakar kröfur um hlutfall faglærðs starfsfólks í búsetukjörnum og sambýlum. Við viljum hækka það hlutfall og festa í sessi að að minnsta kosti 25% starfsfólks sé faglært. Með aukinni fagþekkingu má bæta gæði þjónustunnar, draga úr starfsmannaveltu og skapa meiri stöðugleika fyrir skjólstæðinga. Miklar mannabreytingar geta valdið óöryggi og vantrausti, sérstaklega hjá þeim sem treysta á fasta þjónustu.

Stjórnendur þurfa einnig meira svigrúm varðandi stöðugildi og yfirvinnu til að geta skipulagt þjónustuna á faglegan og raunhæfan hátt. Við treystum fagfólkinu sem stýrir þjónustunni og viljum vinna með því að uppbyggingu öflugrar og stöðugrar þjónustu fyrir fatlað fólk.

Sjálfstæð búseta – Húsið á sléttunni

Nýr búsetukjarni, svo sem Húsið á sléttunni, er mikilvægt skref til að bæta þjónustu og aðstöðu fyrir skjólstæðinga og fjölskyldur þeirra. Viðreisn vill klára það verkefni á næsta kjörtímabili til að draga úr sundrun fjölskyldna og tryggja að þjónustan sé veitt á Akranesi.

Atvinnumál fatlaðra

Við viljum styðja við atvinnuþátttöku fatlaðs fólks með fjölbreyttari atvinnutækifærum sem henta mismunandi þörfum og getu. Með því eykst sjálfstæði og félagsleg tengsl styrkjast. Mikilvægt er að fyrirtæki og stofnanir á Akranesi séu upplýst um ávinninginn af því að ráða fatlað fólk til starfa og að sveitarfélagið sýni þar fordæmi.

Aðgengi

Aðgengi er lykilatriði í jafnrétti fatlaðs fólks. Við viljum bæta aðstæður á Akranesi með betri gangstéttum, römpum og auknu aðgengi í sundlaugum, sérstaklega við heita potta. Með markvissum úrbótum getum við skapað samfélag þar sem allir fá raunveruleg tækifæri til þátttöku, sjálfstæðis og betri lífsgæða.

List og menning

Draumur okkar í Viðreisn er einnig að geta stuðlað að sem ríkustu menningar- og listalífi fyrir fólk með fatlanir. Við viljum hugsa stórt og leggja drög að stefnu tengdri listamiðstöð þar sem hægt væri að sækja vinnustofur og námskeið og halda sýningar og markaði. Þannig stuðlum við að aukinni inngildingu í lista- og atvinnulífi.

 

Helga Björg Þrastardóttir, 2. sæti á lista Viðreisnar á Akranesi

Guðný Sara Birgisdóttir, 4. sæti á lista Viðreisnar á Akranesi