
Listaskóli Borgarfjarðar – gleðin í starfinu
Sigfríður Björnsdóttir
Opinn dagur verður laugardaginn 7. febrúar næstkomandi í höfuðstöðvum Listaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi í tilefni af degi tónlistarskólanna um land allt. Þá verður tækifæri til að skoða aðstöðuna, hitta kennara og hlýða á flutning tónlistar.
Starfið í Listaskóla Borgarfjarðar er fjölbreytt og spennandi og ýmislegt af því að frétta. Starfsemin byggir auðvitað á firnasterkri stoð tónlistardeildarinnar sem mun fagna 60 ára starfsafmæli á næsta ári. Við það starf hafa bæst bæði leiklistarkennarar og danskennarar. Einvala lið bæði reynsluríkra og mjög virkra listkennara og listamanna og samstarf við öfluga aðila á vettvangi skapar sífellt ný tækifæri. Einnig höfum við fengið alveg frábæra aðila til samstarfs vegna styttri námskeiða og stendur til að halda því áfram.
Menningin í Listaskólanum er frumkvæð og einkennist af mikilli þátttöku og vilja til nýtingar tækifæra. Tónlistarnemendur okkar eru margir og harðduglegir og koma fram á öllum meginhátíðum sveitarfélagsins og eru beðin um tónlistaratriði á lokaðri viðburði. Þau senda líka inn frumsamið efni í tónsköpunarverðlaunin Upptaktinn þar sem okkar fólk hefur tvisvar komist að á þeim fjórum árum sem við höfum tekið þátt, sem er frábær árangur. Ungir söngvarar meðal nemenda hafa einnig gert garðinn frægan og taka þátt í keppnum og viðburðum. Og áhuginn er mikill! Margir nemendur okkar í danslist sækja aukatíma í ballet sem standa þeim til boða, eldri tónlistarnemendur nýta æfingaaðstöðu að vild og nemendur senda sköpunarverk sín út í lífið til að skapa sér ný tækifæri. Nemendur frá okkur stunda nú nám bæði í Tónlistarskóla FÍH og við Listaháskóla Íslands. Og ævintýrin gerast enn. Nemandi úr söngleikjadeild Listaskólans til margra ára dansar nú og syngur á sviði Borgarleikhússins í Galdrakarlinum í Oz! Og kennarar reynast eins og alltaf dýrmætar fyrirmyndir, nú síðast gítarkennari okkar sem gítarleikari í sýningu Þjóðleikhússins á hinni spennandi Ormstungu.
Samstarf skóla og stofnana er lykill að nýjum tækifærum og samstarfið eflir okkur öll. Samstarfviljinn er mikill og nemendum alls staðar vel tekið. Landnámssetrið, Reykholtskirkja og Geirabakarí hafa ítrekað boðið okkur velkomin með viðburði. Leikskólarnir hafa í samvinnu við Listaskólann gripið tækifærið til að taka þátt í landsverkefninu Söngvavor og munu í vor gera það í annað skipti. Í haust fengum við í fjórða sinn sýningu Óperudaga fyrir elstu leikskólabörnin og gekk mjög vel, í þetta sinn í góðri samvinnu við nýstofnaða Barnamenningarhátíð Vesturlands. Leikskólarnir hafa á hverju vori skapað listaverk sem sýnd hafa verið í Geirabakaríi sem hluti af OK hátíðinni, sem er uppskeruhátíð barna í Borgarbyggð. Sú hátíð verður haldin í fjórða skipti vorið 2026 með þátttöku allra skóla, listhópa og stofnana sem vilja. Listaskólinn er í samstarfi við Menntaskóla Borgarfjarðar og leikfélag skólans Kopar. Samstarfið skapar bolmagn til að styðja Kopar við glæsilegar uppsetningar ár eftir ár og þau bjóða með 10. bekkingum á svæðinu sem það vilja. Samstarfið við Ölduna gefur okkur mikið og grunnskólarnir hafa tekið samsöngsátaki skólaársins opnum örmum. Hljómlistarfélag Borgarfjarðar umfaðmar söngnemendur okkar sem fá einstakt tækifæri til að koma fram á tónleikum með atvinnufólki. Við höfum líka fengið frábæra gesti til okkar, bæði danshópa úr samstarfsskólanum Dansgarðinum Óskandi og Skólahljómsveit Vesturbæjar og miðbæjar sem hefur tvö vor í röð skreytt viðburði okkar og glatt geð svo fjölmargra með spilamennsku sinni.
Nú í byrjun árs var tekið í notkun nýtt og glæsilegt húsnæði í Grunnskóla Borgarfjarðar að Kleppjárnsreykjum. Þar fær tónlistin verðugt umhverfi og í ljósi breytinga á nemendahópnum hefur tekist að auka fjölbreytni námstilboða þar. Ástæða er til að fagna því að keyptur var lítill flygill til að lyfta enn frekar frábærri hljóðfæra- og söngkennslu við skólann. Hér er engan veginn allt upp talið og aðeins rými til að draga upp brotakennda mynd.
Við sem störfum við Listaskóla Borgarfjarðar erum þakklát fyrir allt öfluga samstarfið, velviljann og ekki síst áhuga íbúa í Borgarbyggð á starfinu.
Við hlökkum til að sjá sem flest næsta laugardag!
Sigfríður Björnsdóttir skólastjóri

Dóra Erna Ásbjörnsdóttir við flygilinn.

Tröllkonan og töfraeyjan, barnaópera.