Líf og fjör í Safnahúsi – nú sem endranær

Sævar I Jónsson

Safnahús Borgarfjarðar stendur fyrir ýmsum viðburðum ár hvert sem miða að því að auka líf og aðgang gesta að fjölbreyttu starfi þar sem vonandi sem flestir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Meðal nýlegra viðburða má nefna Safnamola sem eru á dagskrá annan hvern þriðjudag yfir vetrartímann.  Þar segja starfsmenn frá einhverju í starfsemi sinna safna í notalegu og óformlegu spjalli. Nú þegar hafa nokkur erindi verið haldin, m.a. um nýjar sýningar á lista- og byggðasafni, ljósmyndir og skjöl af Skjalasafni hafa verið skoðuð og fjallað hefur verið um jólabókaflóðið á bókasafni svo einhver dæmi séu tekin.  Markmið Safnamolans hverju sinni er að veita gestum innsýn inn í störf safnanna og um leið búa til samveruvettvang fyrir þá sem eru heima á þessum tíma dags, og vilja hitta aðra og fræðast í einni og sömu heimsókninni. Molarnir hafa mælst vel fyrir hjá þeim sem á þá að hafa hlýtt.  Að auki eru þeir kærkomnir fyrir starfsmen Safnahúss að deila þekkingu sinni og viðfangsefnum hverju sinni, meðal annars til annarra starfsmanna.

Ýmsa aðra nýja viðburði má nefna: Lesandinn er dagskrárliður á facebooksíðu bókasafnsins en þar eru lánþegar beðnir um að segja frá þeim bókum sem mestu áhrif hafa haft á þá í gegnum tíðina. Pistlarnir hafa ekki fasta birtingu en koma inn annað veifið en lánþegar hafa vel tekið í beiðnir um að deila sínu lestrarlífi með öðrum.

Fjölmargar uppstillingar úr bókakostinum eru gerðar á hverju ári til að auka áhuga gesta á safnkostinum. Nýverið var uppstillingin Bókaflokkur mánaðarins sett upp og verður vonandi að föstum lið. Þá má einnig minna á að Bókaklúbburinn Þráður sem starfað hefur undanfarin ár á bókasafninu getur bætt við sig félögum en félagar klúbbsins hittast mánaðarlega og fjalla um þá bók sem lesin er hverju sinni.

Þessi misserin stendur yfir í Safnahúsinu námskeiðið Krílatónlist fyrir börn 3-13 mánaða og foreldra þeirra í umsjá Úlfhildar Þorsteinsdóttur en þar er sungið leikið og unnið með æfingar sem efla taktskyn og tóneyra.  Námskeiðið er liður í verkefninu Samvera í Safnahúsi þar sem boðið er upp á fjölskylduvænar samverustundir. Annað gott dæmi um slíkt starf eru Spilastundir sem haldnar eru á hverju ári þar sem Spilavinir koma í heimsókn og kenna nýjustu spilin.

Þriðjudaginn 10. maí kemur stórleikkonan Unnur Ösp Stefánsdóttir í heimsókn í Safnahús og flytur erindi um leikgerð sína Salka: Ástin og dauðinn sem byggt er á fyrri hluta skáldsögu Halldórs Laxness, Sölku Völku, Þú vínviður hreini og Unnur Ösp sýnir nú um stundir í Landnámssetrinu.

Laugardaginn 21. mars verður Perlað af Krafti í samvinnu við Kraft og Krabbameinsfélag Borgarfjarðar og eru sem flestir hvattir til að leggja sitt af mörkum og perla með okkur í Safnahúsi þennan dag.

Sýningastarf er með miklum blóma í Safnahúsi og nú stendur til að mynda yfir fræðslusýningin Sjónarafl- þjálfun í myndlæsi sem byggist á samnefndu verkefni Listasafns Íslands sem er samstarfsaðili Listasafns Borgarness að þessu sinni.  Á sýningunni eru fjölmörg listaverk úr safnkosti listasafnsins.

Myndamorgnar á vegum Héraðsskjalasafns hafa löngu sannað tilverurétt sinn en hálfsmánaðarlega á föstudögum yfir vetrartímann býðst gestum að koma og greina ljósmyndir úr eigu ljósmyndasafnsins, er oft mikill handagangur í öskjunni og gaman á þeim viðburðum.

Hér hafa aðeins verið nefndir nokkur verkefni en víst er að árið 2026 verður spennandi og viðburðaríkt.

 

Sævar I Jónsson