Leikskólamál í Borgarbyggð

Tinna Rut og Helena Rós

Síðasta vor boðaði Borgarbyggð breytta stefnu og nýja hugsun í leikskólamálum með þeim tilgangi að styrkja starfsumhverfi leikskóla. Boðið er upp á fyrstu 6 klukkustundir gjaldfrjálsar og aukningu í sveigjanleika á dvalartíma barna. Markmiðið er bætt aðgengi, skapa vænlegt umhverfi og efla gæði faglega starfsins.

Því miður felur innleiðing á breyttri stefnu um leikskólamál í Borgarbyggð í sér skerta þjónustu. Svokallaðir skráningardagar milli jóla og nýárs, í dymbilviku og í vetrarfríum. Þessa daga þarf að skrá barnið með þó nokkrum fyrirvara, lágmarksskráning fyrir hvern dag eru fimm börn. Frá og með 1. ágúst 2026 koma þessir dagar til með að kosta aukalega ofan á hefðbundin leikskólagjöld. Ljóst er, þrátt fyrir góðan ásetning, að þetta bitnar helst á þeim foreldrum sem eru einstæðir og/eða efnaminni.

Þrátt fyrir að markmiðið sé að bæta aðgengi og jafnræði virðist framkvæmdin illa aðlöguð að aðstæðum í dreifbýli. Í Borgarbyggð er algengt að foreldrar þurfi að keyra langar vegalengdir til að koma börnum í leikskóla, fyrir þá foreldra er ekki raunhæft né hagkvæmt að nýta einungis sex klukkustunda vistun.

Fyrirkomulagið getur því haft í för með sér aukinn kostnað og flækjustig fyrir fjölskyldur í stað þess að létta undir með þeim. Greiðslur fyrir hverja mínútu og aukinn kostnaður vegna skráningardaga leggst þyngra á þá sem hafa takmarkað val á staðsetningu og vinnutíma.

Þetta vekur upp spurningar hvort verið sé að innleiða lausnir sem henta fyrst og fremst í þéttbýli, án þess að taka nægilegt tillit til ólíkra aðstæðna innan sveitarfélagsins. Dreifbýli krefst sveigjanleika og raunhæfara útfærslna, ekki kerfi sem gerir daglegt líf fjölskyldna flóknara.

Miðflokkurinn hyggst leggjast yfir þessi mál af fullri alvöru, meta árangurinn og greina hvaða þættir skila raunverulegum árangri. Jafnframt verður horft til þess hvað megi bæta og gera betur.

Setjum x við M þann 16. maí.

 

Tinna Rut Þórarinsdóttir

Höf. skipar 3. sæti á lista fyrir Miðflokkinn í Borgarbyggð

Helena Rós Helgadóttir

Höf. skipar 4. sæti á lista fyrir Miðflokkinn í Borgarbyggð