Leiðtogar af guðs náð

Eiríkur Blöndal

Leopold annar Belgíukonungur var leiðtogi af guðs náð.  Hann taldi heppilegast að hann ætti sjálfur nýlenduna Austur Kongó. Sumir segja að honum hafi bara þótt allt of mikið vesen að belgískir embættismenn væru að vasast í slíkri eignaumsýslu, kerfið var líka flókið og of þungt.  Reynslan af stjórnartíð hans í Austur Kongó var samt ekki góð. Mér er sagt að hann hafi náð yfirráðum yfir Austur Kongó með blöndu af diplómatíu, fjármagni, blekkjandi samningum við afríska leiðtoga og stuðningi evrópskra stórvelda.

Undanfarna daga hefur farið mikið fyrir umræðu um eignarhald og stjórnun Landsnets og Landsvirkjunar.  Það virðist vera að ríkið sé að mestu leyti eigandi þessara fyrirtækja, annað þeirra hlutafélag en hitt sameignarfélag. En ríkisstjórnin eða ráðherrar virðast ekki fara með stjórn þessara fyrirtækja. Að vísu skipar fjármálaráðherra stjórnirnar, en hefur að öðru leyti ekkert með stjórn fyrirtækjanna að gera. Umhverfis- og auðlindaráðherra skipar úrskurðarnefnd um auðlindamál og dómsmálaráðherra dómara, en til þessara tveggja stofnana gæti heyrt að úrskurða ef einhver hefði skoðun á gerðum Landnets eða Landsvirkjunar. Mikil leynd ríkir yfir störfum stjórna þessara fyrirtækja, að því er virðist að kröfu evrópskra stórvelda.  Lögð er rík áhersla í umræðunni á að ríkið komi ekki að stjórnun fyrirtækjanna. Af og til leggja ráðherrar samt til eitthvað sem gæti komið þessum fyrirtækjum vel og síðast í gær lagði Jóhann Páll til að Landsnet og Landsvirkjun ætti að vera aðeins jafnari fyrir lögum og stjórnarskrá um eignarnám en aðrir sem í ríkinu hrærast.

Hörður Arnarson hefur framundir þetta verið forstjóri Landsvirkjunar. Hann var ráðinn fyrir allmörgum árum úr hópi umsækjanda en ekki var unnt að gefa upp hverjir sóttu um þá.  Núna er staðan aftur auglýst og vandlega auglýst að leynd verði yfir því ferli. Landsvirkjun er sameignarfélag þjóðarinnar og félags í eigu þjóðarinnar, en það félag á 0,1% hlut.  Fjármálaráðherra fer með hlutinn og skipar stjórn.  Stjórn skipar forstjóra.

Ragna Árnadóttir er forstjóri Landsnets. Þegar hún var ráðin fyrir stuttu óskuðu bændur í Borgarfirði eftir því að fá að vita hverjir hefðu sótt um. Ástæðan var að Landsnet hyggur á áframhaldandi stórfellda eignaupptöku í Borgarfirði. Gott væri að vita hvaða öfl komast að í þeirri baráttu og hvaða ekki. Sérstaklega vegna þess að forstjórinn og stjórnin er algerlega ótengd eigandanum að sögn þegar kemur að mikilvægum ákvörðunum. Stjórnarformaður Landsnets neitaði að upplýsa hverjir hefðu sótt um. Landsnet er hlutafélag í eigu ríkisins að mestu en svolítið í eigu Orkuveitu Reykjavíkur líka. Í lögum um stofnun Landsnets er sérstaklega tiltekið að heimilt sé að selja það hvenær sem er. Í umræðum á Alþingi við setningu laganna var sérstaklega tiltekið af þáverandi iðnaðarráðherra að ekki yrði vandamál fyrir stjórnvöld að fá upplýsingar frá hinu nýja félagi. Hvorki núverandi þingmenn, né núverandi eigendur Orkuveitu Reykjavíkur, höfðu hins vegar áhuga á upplýsingum um hver hefði getað verið valinn til að gæta fjöreggsins.

Alþingi hefur sífellt minna hlutverk. Í gamla daga höfðu einstakir þingmenn skoðanir á hinum ýmsu málum og ýttu áfram því sem þeir töldu réttlætismál með öllum ráðum meðal annars með samskiptum við ráðuneyti og ráðherra hverra flokka sem þau voru. Nú á dögum er slíkt atferli talið bæði brot á flokksaga og afskipti af stjórnsýslu og opinberum fyrirtækjum.  Þetta á reyndar ekki við um Jón Gnarr sem las einhversstaðar að hann ætti að fylgja eigin sannfæringu. Alþingismenn hafa þess vegna ekkert að segja um málefni Landsvirkjunar eða Landsnets, nema kannski að spyrja um hverjir hittu hvern á fundum og hvort eða hvað þeir hafi þá borðað.

Sigurður Ingi Jóhannsson fann upp svokallaða Raflínunefnd. Í þá tíð var hann sennilega innviðaráðherra. Raflínunefnd er nefnd sem trompar stjórnarskrárvarinn sjálfsstjórnarrétt sveitarfélaga. Sveitarfélög sem um ræðir í hverju tilfelli mega skipa í nefndina fulltrúa en fulltrúi ráðherra ræður samt öllu ef ágreiningur er. Það er svo á höndum iðnaðarráðherra að heimila eignarnám í framhaldinu. Það kom þess vegna í hlut Ragnars Þórs Ingólfssonar að skipa þessa nefnd.  Bændur í Borgarfirði gerðu athugasemdir við að raflínunefndin væri skipuð. Ástæðan var sú að þeir töldu óheppilegt að rýra þetta vald sveitarfélaga og auk þess væru forsendur fyrir skipun nefndarinnar ekki fyrir hendi og óeðlilegt væri að stofnun samtaka bænda til að gæta hagsmuna gagnvart Landsneti væri sérstaklega tiltalin sem rík ástæða til beitingar þessa valds.

Í stuttu máli má frá því segja að hvorki ráðuneytið, Landsnet né úrskurðarnefnd ráðherrans taldi bændur vera aðila málsins þótt þeir augljóslega yrðu fyrir barðinu á því.  Raunar eru frumbyggjar eða almenningur sjaldnast aðilar nokkurra mála núorðið. Umsagnir og samráð fara aðallega fram sem bréfaskóli milli mismunandi skrifstofa stjórnvalda og gervigreindin knúin áfram af orku heimsins sér að mestu leyti bæði um skrif umsagna og úrvinnslu gagna.  Niðurstaða samráðs yfirleitt að hugmynd leiðtogans hafi verið mjög góð. Að minnsta kosti var þetta niðurstaðan þegar umhverfismatsskýrsla vegna Holtavörðuheiðarlínu 1 var til umsagnar.

Fyrir hönd nýlenduherranna voru gjarnan lénsherrar og samningamenn sem skipulögðu nýtingu auðlindanna. Staða mála okkar landeigenda gagnvart Landsneti er enda sú að boðuð hefur verið koma sérstaks samningamanns er semja skal við hvern einstakan landeiganda. Löglega stofnuð hagsmunasamtök landeigenda eru hins vegar hunsuð. Fram undir þetta hefur það verið talið eðlilegt að fólk komi saman á Íslandi, svo fremi að það ógni ekki hagsmunum ríkisins. Um miðjan áttunda áratuginn fór líka samningamaður um sömu lönd vegna lagningu Hrútatungulínu 1.  Þeir samningar eru aðeins nýlega komnir í ljós og leiða í ljós gróflega mismunun og niðurlægjandi samningsákvæði.  Er sagan að endurtaka sig?

Já, sannarlega eru vegir guðs órannsakanlegir.

 

Eiríkur Blöndal