
Ungt fólk þarf fleiri tækifæri – ekki fleiri hindranir
Hrafn Ágúst Björnsson
Það segir sitt um stöðuna á Akranesi þegar sífellt fleiri foreldrar og ungmenni hafa áhyggjur af því hvort næg sumarstörf verði yfir höfuð í boði á komandi sumri. Fyrir marga unglinga er fyrsta starfið ekki bara leið til að afla tekna – heldur fyrsta skrefið inn í ábyrgð, vinnusemi og sjálfstæði.
Þess vegna vekur það sérstakar áhyggjur þegar atvinnulífið á svæðinu stendur frammi fyrir erfiðum tímum að þá skuli bæjarfélagið sjálft á sama tíma draga úr möguleikum unga fólksins til atvinnuþátttöku.
Áhrifin frá Grundartanga eru þegar farin að skila sér inn í samfélagið. Bilunin hjá Norðuráli hefur haft áhrif langt út fyrir verksmiðjuna sjálfa, þótt betur hafi tekist til við viðgerðir en menn óttuðust í fyrstu. Samhliða því glímir Elkem við þrengingar sem rekja má meðal annars til verndartolla Evrópusambandsins og versnandi samkeppnisstöðu orkufreks iðnaðar í Evrópu.
Þetta þýðir færri sumarstörf, minni yfirvinna, aukin óvissa og færri tækifæri fyrir unga Skagamenn sem vilja vinna, safna sér fyrir námi eða einfaldlega fá fótfestu á vinnumarkaði.
Við slíkar aðstæður ætti sveitarfélagið að stíga fastar til jarðar. En því miður hefur bæjarstjórnin valið að fara í gagnstæða átt með því að þrengja aðgengi að vinnuskóla bæjarins. Það er erfitt að skilja þá forgangsröðun að á sama tíma og einkafyrirtækin á svæðinu glíma við samdrátt og fækkun starfa ákveði bæjarfélagið sjálft að þrengja dyrnar inn á vinnumarkaðinn fyrir unga fólkið.
Þetta þarf ekki að vera svona.
Við getum farið aðra leið. Við getum ráðist í sérstakt sumarátak í atvinnumálum ungs fólks þar sem sveitarfélagið, atvinnulífið og félagasamtök vinna saman að því að skapa fleiri störf og fleiri verkefni. Við getum stutt betur við fyrirtæki sem ráða námsmenn og iðnnema yfir sumartímann. Við getum nýtt framkvæmdir og umhverfisverkefni bæjarins til að fjölga störfum og efla starfsreynslu.
En umfram allt þurfum við skýra framtíðarsýn fyrir Akranes. Fjölbreyttara atvinnulíf, aukna nýsköpun, fleiri tæknistörf og sterkari tengingu við iðn- og verknám. Við eigum að byggja samfélag þar sem unga fólkið sér framtíð sína – ekki samfélag sem sendir þau skilaboð að bestu tækifærin séu annars staðar.
Skaginn á að vera bæjarfélag sem trúir á vinnusemi, framtak og unga fólkið sitt. Það er verkefni sem við eigum að taka alvarlega.
Setjum X við M í kosningunum þann 16. maí og látum verkin tala.
Hrafn Ágúst Björnsson
Höf. er oddviti Miðflokksins á Akranesi