Kraftmiklir skátar, skjátur skemma og fleiri fréttir

Jens Baldursson

 

Duglegir skátar

Skátar unnu sjálfboðastörf fyrir okkur í Skógræktarfélagi Akraness tvo daga í síðustu viku, miðvikudaginn 26. júlí og fimmtudaginn 27. júlí. 15 manna hópur mætti fyrir hádegi fyrri daginn, annar 15 manna hópur eftir hádegi sama dag, þriðji 15 manna hópurinn mætti fyrir hádegi 27. júlí og loks mætti fjórði hópurinn (16 skátar) eftir hádegi þann dag.

Allir hóparnir stóðu sig afar vel, skátarnir voru hörkuduglegir og ósérhlífnir. Þeir gróðursettu birki og fleiri tré, grisjuðu úr sér sprottinn víði, settu niður ræsi og grófu ræsisskurði sem er hörku púl. Þá var njóli klipptur, tekið til og ýmislegt fleira. Hvergi var slegið af. Okkur sjálfboðaliðana í skógræktarfélaginu munar aldeilis um þessar hjálpsömu hendur.

Skátarnir voru frá hinum ýmsu Evrópulöndum, Kanada, Brasilíu, Mexíkó, Hong Kong, Líbanon o.s.frv. Þeir voru fæstir vanir svona vinnu en fljótir og viljugir að læra og óhræddir við að óhreinka sig í ræsagerðinni og annari vinnu.  Þrír fyrstu hóparnir unnu í Slögu en síðasti hópurinn vann við þjóðveginn þar sem aðallega var grisjað og gróðursett.

Nú er búið að gróðursetja öll 20 þús. tréin sem við fengum í sumar. Skátarnir kláruðu að setja niður þau tré sem eftir voru.

 

Skjátur skemma

Raunar fengum við óvænt 5 manna skátahóp á föstudeginum. Tilefnið var heldur leiðinlegt, rollur komust í tré við Einbúann, kipptu upp og nöguðu nýgróðursett tréin. Við fengum skátana til að reka rollurnar. Þær fóru beinustu leið í gegnum gat á girðingunni að Ytra Hólmi. Lítil lömb komust í gegnum þetta gat fyrr í sumar en nú tróðust stærðar rollur þar í gegn. Skátarnir aðstoðuðu við að loka gatinu og síðan við að taka til í gámnum. Allir brosandi og jákvæðir (þó þau væru berhent að kljást við gaddavírinn) þannig að maður gat ekki annað en glaðst með þeim þó rolluskjáturnar hafi óneitanlega spillt deginum og valdið miklu tjóni. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem rollur komast í tréin okkar í sumar, aðeins um viku fyrr komust nokkrar rollur í bakka með trjám sem biðu þess að vera settir niður í Slögu. Tjónið var töluvert: aspir, reyniviður og birki voru nöguð og tætt. Eins og þetta sé ekki nóg þá hafa rollur ítrekað komist inn í Slögu með tilheyrandi skemmdum á gróðri og til ama þeim sem þar vilja njóta náttúrunnar.

Bændur og hobbýbændur verða að sjá til þess að fé þeirra haldi sig á þeirra eigin landi en eyðileggi ekki fyrir öðrum. Við áhugafólkið í skógrækt sem viljum rækta upp landið eyðum allt of miklum tíma í alls konar rolluvafstur en eigendur fjárins virðast ekki nenna að hirða um það eða geta það. Tryggja þarf að lög og reglur kveði á um að fólk beri ábyrgð á búfénaði sínum en geti ekki komist upp með að bera enga ábyrgð vegna tjóns sem dýrin valda.

 

Sláttur og fleiri góðar fréttir

Fyrir utan rolluvafstur eru mest góðar fréttir af skógræktarfélaginu. Við höfum verið afar dugleg að setja niður tré í sumar. Fyrir stuttu síðan sló Ingólfur Valdimarsson stígana okkar með ruddasláttuvél sem hann keypti nýlega. Árum saman höfum við átt í basli með að fá stígana slegna á viðráðanlegu verði og m.a. reyndum við að safna fyrir dráttarvél í vetur. Ekki er sama þörf fyrir okkur að eignast slíkt tæki fyrst við fengum hagstæð kjör og rétt tæki hjá Ingólfi. Vél hans sló m.a. njólaskóga eins léttilega og grasið.

Þá bindum við miklar vonir við að fá meira land til að gróðursetja í. Árum saman höfum við óskað eftir þvi, bæði við þjóðveginn og fyrir neðan Slögu. Ef okkur tekst að fá meira land þá getum við stækkað útivistarsvæði Skagamanna umtalsvert. Fátt er eins heilnæmt fyrir bæjarbúa nútímans eins og að ganga, hlaupa nú eða hjóla úti í náttúrunni og njóta gróðursins og dýralífsins. Það hentar fólki á öllum aldri og margir sem glíma við heilsubrest af einhverju tagi telja góðan göngutúr í náttúrunni gera þeim gott.

Í lokin hvet ég sem flesta til að styðja okkur í Skógræktarfélagi Akraness með því að ganga í félagið, líka þá sem ekki treysta sér til að vinna líkamlega vinnu. Það munar líka um “andlega” stuðninginn.

Fylgjast má með fréttum af félaginu á heimasíðunni: http://www.skog.is/akranes/

Einnig á Facebooksíðunni: https://www.facebook.com/groups/326273417742172/