
Kosningamál kjósandans
Hafdís og Ragnhildur Helga
Hvað er það sem brennur á kjósendum Borgarbyggðar fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor? Það var spurningin sem lagt var upp með þegar boðað var til íbúafundar á Hvanneyri í lok febrúar síðastliðins og var tilgangurinn að íbúar gætu komið sínum áherslumálum á framfæri áður en framboð til sveitarstjórnar færu að móta sínar áherslur. Þetta var grasrótarhugmynd, sprottin upp af áhuganum fyrir að sjá jákvæða þróun samfélagsins sem við búum í. Þessi atriði hér að neðan eru unnin upp úr þeim umræðum og punktum sem fundargestir komu með á þessum fundi.
Samgöngur, skólar og þjónusta
Á íbúafundi í Borgarbyggð komu skýrt fram áhyggjur íbúa af samgöngum, grunnþjónustu og aðgengi að opinberri þjónustu víða um sveitarfélagið. Niðurstöðurnar sýna að margir telja nauðsynlegt að sveitarfélagið beiti sér af meiri þunga í samgöngu- og byggðamálum, um leið og standa þurfi vörð um skóla, félagsþjónustu og samfélagslega innviði.
Samgöngumál voru meðal þeirra atriða sem hvað mest bar á góma. Íbúar bentu á langar vegalengdir innan sveitarfélagsins og töldu mikilvægt að tryggja reglulegar almenningssamgöngur alla daga vikunnar. Sérstaklega var nefnt að huga þurfi að leið 81 og bæta þjónustu við tómstundaakstur. Þá var einnig kallað eftir akstri milli Varmalands og Kleppjárnsreykja, sem og innanbæjarakstri í Borgarnesi.
Vegamál og vetrarþjónusta voru einnig ofarlega á baugi. Fram kom að víða innan sveitarfélagsins væri ástand vega óviðunandi og að íbúar vildu sjá stofnleiðir kláraðar og öðrum vegum sinnt betur. Uxahryggjaleið var nefnd sérstaklega sem lykilmál fyrir framtíð byggðar og ferðaþjónustu í héraðinu. Þá komu fram áhyggjur af snjómokstri, meðal annars á Draganum, og krafa um öflugri þjónustu allan veturinn, sjö daga vikunnar.
Skólamál og grunnþjónusta voru annað stórt þema fundarins. Íbúar lögðu áherslu á að standa vörð um leik- og grunnskóla um allt sveitarfélagið og tryggja festu í starfsemi yngstu bekkja á Varmalandi og Hvanneyri. Einnig var bent á að bæta þyrfti flæði nemenda milli skóla og skólastiga og auka samstarf þeirra á milli.
Málefni eldri borgara komu skýrt fram í umræðunni. Þar var lögð áhersla á að efla félagsþjónustu, ekki síst á kvöldin og um helgar, svo eldra fólk geti búið lengur heima. Jafnframt var bent á mikilvægi félagsheimila sem samkomustaða og stoðkerfis fyrir nærumhverfið. Spurt var sérstaklega um framtíð þessara húsa og kallað eftir því að þau verði áfram virk og aðgengileg samfélaginu. Sjónum var sérstaklega beint að Brún og því mikilvæga félagsstarfi aldraðra sem þar fer fram og má alls ekki leggja af.
Þá komu fram áhyggjur af stöðu menningarstofnana í héraðinu. Íbúar lýstu yfir áhyggjum af rekstri Snorrastofu og töldu mikilvægt að standa við bakið á stofnunum á borð við hana og söfnum í sveitarfélaginu. Einnig var bent á þörf fyrir varðveislurými sem gæti þjónað söfnum og jafnframt hýst varaeintakasafn Landsbókasafns sem nú er í Reykholti.
Sorphirða var einnig mikið umræðuefni. Íbúar í uppsveitum sögðu skorta aðgengi að gámastöðvum og vildu sjá mannaða stöð, helst í Reykholtsdal. Þá var bent á að leigjendur ættu oft erfitt með að nýta núverandi kerfi og að skoða þyrfti sérstök sorphirðukort eða förgunarkort fyrir þann hóp.
Á fundinum kom einnig fram vilji til að efla heilsugæslu og lögregluþjónustu svo hún endurspegli betur raunverulegan fjölda fólks í héraðinu. Til að slíkt náist þarf sveitarstjórnarfólk í Borgarbyggð að pressa á ríkisvaldið um fjárveitingar til þessara þátta.
Íþróttastarf var sömuleiðis nefnt, þar sem íbúar töldu nauðsynlegt að tryggja bæði stuðning við íþróttafélög og að starfsfólk sé ráðið til að halda utan um starfið.
Loks voru skipulags- og umhverfismál til umræðu. Þar má nefna uppbyggingaráform í Brákarey, þar sem íbúar kölluðu eftir skýrari upplýsingum um kostnað við niðurrif húsa og hver bæri hann. Einnig komu fram sjónarmið um aukið átak gegn ref og mink, sérstaklega í friðlandi fugla í Andakíl, sem og endurskoðun á fjallskilum og þörf fyrir aukið fjármagn í girðingar milli afrétta.
Heildarmyndin sem dregst upp af fundinum er skýr: Íbúar í Borgarbyggð kalla eftir sterkari grunnþjónustu, bættum samgöngum og markvissari uppbyggingu um allt sveitarfélagið. Um leið vilja þeir sjá meiri skýrleika í ákvarðanatöku og að betur sé hlustað á ólíkar þarfir ólíkra byggðarkjarna innan sveitarfélagsins.
Það er von okkar sem að þessum fundi stóðum að frambjóðendur til sveitarstjórnarkosninga í Borgarbyggð grípi boltann og taki mið af þessum áherslum þegar stefnumál verða mótuð fyrir kosningarnar – samfélaginu öllu til heilla.
Hafdís Jóhannsdóttir
Ragnhildur Helga Jónsdóttir
