Kosning þingkonu og umboð hennar til starfa

Katrín Sif Sigurgeirsdóttir

Ég er Katrín Sif Sigurgeirsdóttir og er í framboði í Norðvesturkjördæmi fyrir Pírata. Þar sækist ég eftir oddvitasæti. Hvað ert þú kona, að vilja á þing? Jú, sjáðu, ég á erindi þangað. Ég er tilbúin til að láta til mín taka þar með grunngildi Pírata að leiðarljósi. Ég fann nefnilega samleið með hópi fólks sem aðhyllist og fylgir ákveðnum prinsippum, grunnstefnu sem ég finn svo góðan samhljóm með. Ég hef nefnilega hugsjónir um gagnsæja stjórnsýslu. Upplýsingar á mannamáli.

Hugsjónir um traust heilbrigðiskerfi og skilvirkt félagskerfi. Allir einstaklingar eru jafnir fyrir lögum og eiga sama tilkall til allra mannréttinda. Ég er tilbúin til að vinna að því hörðum höndum að standa vörð um þau réttindi. Standa vörð um réttindi barna okkar til að alast upp í réttlátu samfélagi þar sem allir hafa sömu tækifærin, óháð stétt eða stöðu foreldranna. Standa vörð um réttindi aldraðra. Ég vill samfélag þar sem aldraðir fá að njóta ævikvöldsins eins og þeim þóknast best, án þess að vera sett undir falskan ölmusuhatt. Okkur ber að sýna öldruðum virðingu fyrir þeirra lífsverki, án þeirra værum við ekki hér.

Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks hefur það að markmiði að tryggja réttindi fatlaðs fólks til jafns við aðra. Þar þurfum við verulega að bæta í. Íslensk stjórnvöld undirrituðu samninginn árið 2007, fullgiltu hann 2016 en hafa enn ekki lögfest hann. Það þarf að lögfesta samninginn og vinna markvisst að jöfnum rétti og tækifærum allra. Nú og þessi hópur sem ég er að segja ykkur frá, Píratar. Þetta er ungur óspilltur hópur, óraskaður af íþyngjandi gildum og óháður fjármálaöflum. Hópur sem byggir á lýðræði fyrir alla, jöfnum tækifærum, gagnsærri stjórnsýslu og gagnrýninni hugsun. Hópur sem býður upp á mikla aðlögunarhæfni. Hefur svigrúm fyrir vaxtaverki sem felast í því að gera mistök, skipta um skoðun, biðjast afsökunar og gera betur. Hópur sem forðast óþarfa forræðishyggju. Þetta er hópur sem ég hef tekist höndum við og óska nú eftir umboði frá til að starfa í þeirra nafni á alþingi Íslendinga. Fái ég til þess tækifæri vill ég að það sé alveg ljóst að ég geri mér fulla grein fyrir því að stjórnvöld starfa í umboði þjóðarinnar. Það hefur virst sem svo að það sé ekki almenn þekking á því á þinginu og því sé ég ástæðu til að taka það sérstaklega fram.

Það er þjóðarinnar að leggja línurnar. Þjóðin er stjórnarskrárgjafinn. Stjórnarskráin er okkar æðsta plagg og hún skilgreinir það vald sem þjóðin lætur stjórnvöldum í té.  Árið 2012 kusu tveir þriðju hlutar þjóðarinnar með því að leggja ætti tillögur stjórnlagaráðs til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá fyrir Ísland. Þjóðin hefur talað – stjórnvöld hafa hunsað. Til að standa vörð um þennan hornstein lýðræðisins og jafnframt hefja störf þingsins aftur til einhverrar virðingar væri ráð að byrja á því að virða vilja þjóðarinnar og lögfesta nýja stjórnarskrá.

 

Katrín Sif Sigurgeirsdóttir

Höf. tekur þátt í prófkjöri Pírata í NV kjördæmi sem nú er í gangi