Komið að mikilvægu vali um framtíð Akraness

Líf Lárusdóttir

Kæru Skagamenn!

Undanfarnar vikur hef ég fengið það einstaka tækifæri, ásamt öflugu fólki á lista Sjálfstæðisflokksins á Akranesi, að hitta fjölda íbúa, fyrirtækja, félagasamtaka og stofnana í bænum okkar. Fyrir það er ég afar þakklát.

Það sem stendur upp úr eru ekki aðeins góðar móttökur heldur fyrst og fremst öll þau einlægu samtöl sem ég hef átt við fólk um Akranes, stöðuna í dag og tækifærin framundan. Það hefur verið dýrmætt að fá að hlusta á ykkur, heyra hvað ykkur er efst í huga og ræða saman um hvernig við getum haldið áfram að byggja upp öflugt, fjölskylduvænt og framsækið samfélag á Akranesi.

Ég finn sterkt fyrir því að í okkar samfélagi býr kraftur og vilji til að gera enn betur. Það er einmitt sá kraftur sem ég vil leggja mig fram um að vinna með og fyrir. Fyrir mér snúast sveitarstjórnarmál um ábyrgð, traust, samvinnu og skýra sýn á framtíðina. Við þurfum fólk sem er reiðubúið að taka ákvarðanir, gæta hagsmuna Akraness af festu og vinna af heilindum fyrir alla bæjarbúa.

Ég er stolt af þeim hópi sem skipar lista Sjálfstæðisflokksins á Akranesi. Þar fer saman reynsla, þekking og einlægur vilji til að láta gott af sér leiða fyrir samfélagið okkar. Við erum tilbúin til verka og tilbúin að axla ábyrgð.

Að lokum vil ég enn og aftur þakka fyrir stuðninginn, samtölin og hlýjar móttökur. Nú er komið að mikilvægu vali um framtíð Akraness.

Ég óska eftir ykkar stuðningi og hvet ykkur til að merkja X við D í kosningunum 16. maí.

 

Líf Lárusdóttir

Höf. er oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akranesi