Kolbikasvört staða

María Rut Kristinsdóttir

Á vakt síðustu ríkisstjórnar jókst innviðaskuld samfélagsins úr 420 milljörðum króna í 680 milljarða samkvæmt nýrri skýrslu Samtaka iðnaðarins og Félags ráðgjafaverkfræðinga. Verst er staðan á þjóðvegum landsins en þar er uppsöfnuð viðhaldsskuld á bilinu 265-290 milljarðar króna. Skortur á fjárfestingu í innviðum er alvarlegt mál. Slíkt getur hamlað framtíðarvexti einstaka landshluta verulega, dregið úr lífsgæðum, öryggi og samkeppnishæfni.

Grafalvarleg staða á Vesturlandi

Í vikunni lýsti Vegagerðin yfir hættustigi vegna bikblæðinga í vegum á Snæfellsnesi og í Dölum. Ekki í fyrsta skipti. Enda hefur ástandið á þeim verið gjörsamlega óboðlegt síðastliðin ár.  Ég sendi fyrirspurn til innviðaráðherra um vegakerfi og vegaframkvæmdir á Vesturlandi í apríl í fyrra vegna einmitt ástandsins á téðum vegum. Þrátt fyrir pólitískan þrýsting og umræðu þá – létu stjórnvöld það nægja að plástra vandann í stað þess að laga hann. Í þeirri Samgönguáætlun sem þáverandi ríkisstjórn lagði fram í fyrra vor en tókst ekki að afgreiða fram voru áætlaðar 700 milljónir á Vesturlandi af þeim 44 milljörðum sem áformað var að verja í samgöngur á landinu öllu. Það voru köld skilaboð til Vestlendinga. Síðastliðna daga hef ég fengið sendar ótal myndir frá íbúum á svæðinu þar sem hálfur vegurinn virðist vera fastur við dekkin á bílnum þeirra. Grundarfjarðarbær hefur meðal annars safnað saman myndum af ástandinu sem segja meira en þúsund orð. Bæjarstjórnir hafa sent frá sér harðorðaðar ályktanir um það hættuástand sem nú ríkir á vegunum. Ekki í fyrsta sinn en vonandi í það síðasta. Ástandið hefur líklega aldrei verið verra, vegfarendur hafa lent í miklum hremmingum enda í stórhættulegum aðstæðum.

Mál að linni

Það vita allir að það kostar meira til lengri tíma að ýta á undan sér nauðsynlegu viðhaldi. Enginn myglublettur hverfur með því að mála yfir hann. Stíga þarf fast til jarðar og rjúfa þá kyrrstöðu og það andvaraleysi sem ríkt hefur í uppbyggingu og viðhaldi þjóðvega landsins. Nú þegar búa íbúar Vesturlands við hættulega vegi og staðan getur enn versnað. Við megum ekki við því að spara eyrinn og kasta krónunni. Nú er nauðsynlegt að gera allt sem í okkar valdi stendur til að saxa á innviðaskuldina og koma lífæðum landsins, sjálfu vegakerfinu í ásættanlegt horf. Ástandið er aðför að verðmætasköpun í landinu, aðför að íbúum svæðanna og aðför að frelsi þeirra til athafna og jöfnum tækifærum.

Nú þarf að bretta upp ermar og hefjast handa – láta verkin tala. Ný ríkisstjórn hefur sett uppbyggingu innviða á oddinn. Ég mun sem þingmaður Norðvesturkjördæmis halda henni vel við efnið hvað þetta varðar. Það er skömm að því hvernig málin standa.

 

María Rut Kristinsdóttir

Höf. er þingmaður Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi