Kæri íbúi Sveitarfélagsins Stykkishólms

Sigurður Grétar Jónasson

Næstkomandi laugardag, þann 16. maí, verður gengið til sveitarstjórnarkosninga. Íbúalistinn býður í ár fram öflugan lista með mörgum nýjum andlitum í sveitarstjórnarmálum í Stykkishólmi. Þetta er fjölbreyttur hópur fólks sem endurspeglar samfélagið okkar og vill vinna að áframhaldandi uppbyggingu þess.

Við Hólmarar erum stoltir af bænum okkar, samfélaginu og mannlífinu sem hér hefur byggst upp. Við viljum standa vörð um þau lífsgæði sem gera Stykkishólm að góðum stað til að búa á fyrir fólk á öllum aldri.

Til þess þurfum við að huga betur að innviðunum okkar. Viðhaldsskuld hefur safnast upp á fasteignum sveitarfélagsins og víða er ástand gatna og gangstétta orðið slæmt. Íbúalistinn vill setja fram tímasetta aðgerðaáætlun þar sem verkefnum verður forgangsraðað með hliðsjón af fjárhagsstöðu sveitarfélagsins.

Samkvæmt ársreikningi fyrir árið 2025 nema skuldir sveitarfélagsins 3.560 milljónum króna, eða um 2,3 milljónum á hvern íbúa. Það er ekki neyðarástand í fjármálum bæjarins, en ljóst er að við ráðum ekki við áframhaldandi skuldasöfnun. Því þarf að stöðva hana strax, greiða niður skuldir og lækka vaxtakostnað sveitarfélagsins. Með ábyrgum rekstri getum við aftur skapað svigrúm til fjárfestinga til framtíðar.

Undanfarin ár hefur sveitarfélagið notið framlaga frá ríkinu vegna sameiningarinnar við Helgafellssveit árið 2022. Þeim framlögum lýkur um mitt næsta kjörtímabil. Þau hafa skipt miklu máli fyrir rekstur og framkvæmdir undanfarinna ára og því verður minna svigrúm til ráðstöfunar þegar þau falla niður.

Það er gott að búa í Stykkishólmi og þjónustustig bæjarins hefur verið hátt á mörgum sviðum. En ef við tökum ekki betur utan um fjármálin verður erfitt að viðhalda þeirri þjónustu til framtíðar. Hlutverk kjörinna fulltrúa er að tryggja að sveitarfélagið geti áfram verið sterkt samfélag fyrir fjölskyldur, atvinnulíf og íbúa á öllum aldri.

Við viljum áfram vera sveitarfélag í sókn – samfélag þar sem atvinnulíf getur vaxið og fjölskyldur vilja búa. Nú þegar er uppbygging hafin í Víkurhverfi og skipulag atvinnusvæða við Hamraenda og Kallhamra tilbúið – og undirbúningur hafinn fyrir frekari atvinnuuppbyggingu.

Íbúalistinn vill bæta gagnsæi í stjórnsýslu og fjármálum sveitarfélagsins. Mikilvægt er að verkferlar og fundarsköp standist reglur og að fundargerðir og fylgigögn séu birt tímanlega. Einnig þarf að bæta afgreiðslu erinda þannig að hún verði skilvirkari, gagnsærri og leiðbeinandi.

Að lokum vil ég árétta að við eigum að geta átt málefnalegt samtal um framtíð sveitarfélagsins án þess að falla í gamaldags skotgrafir. Við eigum að fagna því að í Stykkishólmi hafi náðst að manna tvö öflug framboð með fólki sem vill vinna samfélaginu sínu gagn.

Það eru fjölmörg tækifæri fram undan fyrir Stykkishólm og við í Íbúalistanum óskum eftir umboði kjósenda til að taka þátt í þeirri vinnu.

Við viljum ekki bara tala um breytingar — við viljum vinna þær með ykkur.

 

Sigurður Grétar Jónasson

Höf. er oddviti Íbúalistans í Stykkishólmi