Kæri frambjóðandi!

Dagrún Ósk Jónsdóttir

Fyrir hönd Hagsmunahóps FÍSOS viljum við beina sjónum að einum af lykilþáttum sveitarfélaga sem oft fellur í skuggann í kosningaumræðu: Söfnunum. Söfn eru mikilvægir samfélagsinnviðir sem skapa verðmæti, efla íbúa og styrkja staðarímynd. Þess vegna teljum við mikilvægt að þau fái skýra umfjöllun í aðdraganda sveitarstjórnakosninga.

Mörg söfn eru í eigu sveitarfélaga og fyrir önnur getur stuðningur þeirra skipt sköpum. Söfnin eru mikilvæg sveitarfélögum, varðveita menningu, sögu og list samfélagsins. Þau eru aðdráttarafl fyrir ferðafólk en líka samkomustaður heimafólks. Menntunarhlutverk safna er einnig afar mikilvægt og heimsækja flest grunnskólabörn söfn í sínu sveitarfélagi sem og annarra. Áhersla á mikilvægi gagnrýnar hugsunar er leiðarstef í miðlun safna en þau er líka vettvangur fyrir frjálsa tjáningu. Á söfnum fer líka fram mikilvæg rannsóknarvinna. Öflugt safnastarf er jákvæður og mikilvægur þáttur í ímynd svæða og hefur áhrif á hvar fólk velur sér búsetu. Svo hafa þau auðvitað líka jákvæð áhrif á mannlíf og stemmningu, auka ánægju og efla lífsgæði íbúa þar sem starfið er öflugt.

Á sama tíma sýna nýlegar rannsóknir fram á fækkun starfa í menningargeiranum, þróun sem hefur áhrif á söfn um land allt og vekur áhyggjur. Rannsóknir hafa einnig sýnt fram á að hver króna sem varið er í skapandi greinar verður að þremur. Það er því beinlínis hagsmunamál sveitarfélaga að safnamál séu metin að verðleikum.

Í ljósi þessa viljum við spyrja ykkar framboð eftirfarandi spurninga:

 

  • Hver er stefna þíns flokks/framboðs í safnamálum, hverjar eru helstu áherslur til næstu fjögurra ára og hvar má nálgast hana?
  • Hvaða hlutverki gegna söfnin í þínu sveitarfélagi í dag?
  • Hvað þarf að bæta í safnamálum í þínu sveitarfélagi til að efla þjónustu, aðgengi og faglega starfsemi?
  • Hvernig hyggst framboðið tryggja örugga varðveislu menningararfsins í ljósi náttúruhamfara?

Við hvetjum ykkur eindregið til að kíkja á söfnin í ykkar sveitarfélagi og ræða við þau um þeirra stöðu og þarfir, enda eru söfnin mismunandi eins og þau eru mörg. Gaman væri líka að fá að heyra ykkar svör í komandi kosningabaráttu á þeim vettvangi sem þið komið til með að kynna ykkar málefni.

 

Með fyrirfram þökk og góðar kveðjur,

Fyrir hönd Hagsmunahóps FÍSOS

Dagrún Ósk Jónsdóttir, verkefnastjóri