Jákvæð tíðindi af Grundartanga – mikilvægt skref til framtíðar

Haraldur Benediktsson

Það eru afar ánægjuleg tíðindi að Elkem Ísland og Landsvirkjun hafi náð saman um langtímasamning um raforkukaup. Samningurinn er mikilvæg staðfesting á þeim áformum Elkem að halda áfram öflugri starfsemi sinni á Grundartanga og skapa þannig bæði aukinn fyrirsjáanleika og stöðugleika til framtíðar.

Starfsemi Elkem hefur um áratugaskeið verið einn af hornsteinum atvinnulífsins í Hvalfjarðarsveit og gegnt mikilvægu hlutverki í atvinnuuppbyggingu á Vesturlandi. Fyrirtækið hefur skapað fjölbreytt og verðmæt störf, bæði með beinum hætti og í gegnum umfangsmikil viðskipti við þjónustu- og verktakafyrirtæki á svæðinu.

Langtímasamningur af þessu tagi er því ekki aðeins jákvætt skref fyrir fyrirtækið sjálft, heldur einnig mikilvæg og hvetjandi skilaboð til starfsfólks, íbúa og atvinnulífsins alls.

Við í Hvalfjarðarsveit fögnum þessum tímamótum og horfum bjartsýn til áframhaldandi uppbyggingar á Grundartanga. Öflugt atvinnulíf er ein af grunnstoðum blómlegs samfélags og það skiptir miklu máli að fyrirtæki á borð við Elkem sjái tækifæri til áframhaldandi starfsemi og verðmætasköpunar í sveitarfélaginu.

Fyrir hönd sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar óska ég Elkem og Landsvirkjun til hamingju með þennan mikilvæga áfanga og hlakka til áframhaldandi farsæls samstarfs.

 

Haraldur Benediktsson

Höf. er oddviti Hvalfjarðarsveitar