Í undirbúningi jólanna

Axel Freyr Eiríksson

Ég ætla að vera í fyrra fallinu með þetta, gleðilega hátíð! Ég ætti samt að vera með þennan pistil í jólablaði Skessuhornsins en hvað um það, hann verður um eitthvað skemmtilegt. Því áður en þú lýsir fyrsta kertinu í aðventukransinum ætti blóðþrýstingurinn að vera stígandi. Þá er gott að ylja sér við það að það er ekki nema mánuður eftir af jólahátíðinni. Þá er ég líka að tala um áramótin vittu til. Haltu inni andanum og lestu í hljóði: Rót kemur á Netflixið, þú nærð ekki að klára þáttaröðina nema að svíkja þig um svefn, þú þarft að fara og heimsækja fólk, borða skötu, skrifa jólakort og senda (nema þú sért lata týpan sem sendir kveðju á fésinu) klæða þig í óþægilegu fínu fötin, hlusta á Gullbylgjuna, borða helvítis hangikjötið sem blæs þig upp og sviptir þig sixpackinu sem þú ert búinn að vinna fyrir í Crossfittinu, kaupa Macintoshið og Nóa konfektið, skafa bílinn, þrífa skápana, klára jólainnkaupin og setja þig í stellingar fyrir það sem koma skal. Kveðja, Leiðinlegi gaurinn.

Þetta þarf samt ekki að vera leiðinlegt, síður en svo. Ég er mikið jólabarn og elska jólin, allt stressið og letina líka. Jólin eru eins og samband milli tveggja einstaklinga, þú þarft líka að taka þátt í því leiðinlega.

Allavega verður nóg af svona pistlum fljótlega. Fólk sem mælir með vegan jólum, minimaliskum jólum og fleiri útgáfum sem lúkka vel en grasið er bara ekki grænna hinum megin. Haltu þig við þína dagskrá kæri lesandi. Jólin eiga að vera haldin með hverju sínu nefi. Ég hélt nefnilega eitt sinn að þeir einu sem væru seinir með hlutina væru nemendur að læra undir próf. Það er ekki rétt, fullorðna fólkið er alveg eins að miklu leyti. Jólainnkaup á Þorláksmessu er bara nákvæmlega eins og lestur daginn fyrir próf. Það ætla allir að gera þetta fyrr á næsta ári, vera sniðugir þú veist og vera bara í náttbuxunum rétt fyrir klukkan 18:00. En svo grípur fólk sig með allt niðrum sig þegar það fattar að það þarf að græja jólagjafirnar fyrir Binna frænda og heimsækja Íslendingabók eins og hún leggur sig. En það er allt í lagi, svona er þetta bara. Krónísk gleymska er árlegur viðburður á heimilum landsins. Svo bítur maður sig í hnefann þegar maður les í Vikunni eitthvað viðtal við konu sem segist kaupa jólagjafir allt árið. Svo er hún líka svo dugleg að bera á sig andlitskrem, þess vegna er hún með svona geislandi húð – einmitt.

Ég var einu sinni þessi gæi sem reddaði jólunum á síðustu stundu, er búinn að lagast mikið þó. Ég gaf bróðir mínum einu sinni Christmas Vacation með Chevy Chase á DVD tvö ár í röð og vinir mínir fengu jólagjöfina sína úr Ozone á Akranesi daginn fyrir aðfangadag, Liverpool kaffiglös og fótboltastrokleður.

Munið að njóta tímans sem er í nánd, spilið Last Christmas með Wham og gleðileg jól.

Axel Freyr