Hversu gott er neysluvatn Skagamanna?

Hörður Svavarsson

Þetta er stór spurning og svörin eru jafn misjöfn eftir því við hvern er rætt. Vatnsbóli okkar má skipta upp í þrjá megin hluta: Í fyrsta lagi yfirborðsvatn sem rennur niður Berjadal Akrafjalls í opið vatnsból okkar. Hinir tveir hlutarnir eru Óslækurinn og Slaga sem tengd eru ósíað inn á stofnlögn til bæjarins fyrir neðan síuhús við Akrafjall.

Vatnið er svo geislað UV geislum í húsi við golfvöllinn. Við vitum að vatnið úr Slögu og Óslæknum innheldur töluvert af mýrarrauðu sem sest innan á lagnir dreifikerfis, húsa, síubúnað blöndurtækja, þvottavéla og þessháttar búnaðar. Við vitum einnig að vatnið sem kemur úr Berjadalnum inniheldur brunaefni sem koma að mestum hluta frá verksmiðjum á Grundartangasvæðinu. Brunaefnin mælast í auknu mæli í leysingum og þegar að miklar rigningar ganga yfir. Einnig vitum við að svokallað ph gildi neysluvatnsins mælist á bilinu 6,9 til 7,1 eftir því hvar mælingin er framkvæmd.

Ph gildi í vatni segir okkur hversu ríkt vatnið er af steinefnum svo sem magnesíum, kalsíum, natríum og kalíum. Ph skalinn er lógariþmískur þannig að vatn sem er með gildi upp á 8 er 10 sinnum ferskara heldur en vatn sem mælist með ph gildi upp á 7. Sem dæmi má nefna að ph gildi neysluvatns Reykvíkinga, Gvendarbrunnavatnið, mælist 8,8 og Ölfusvatnið (Iceland glacial) mælist 8,4.

Mannslíkaminn er furðulegt fyrirbæri og til dæmis er ph gildi blóðsins um 7,4 og til þess að auðvelda skrokknum að viðhalda réttu ph gildi blóðs er ráðlagt að drekka vatn sem er með hærra ph gildi en blóðið er sem auðveldar líkamanum að hreinsa blóðið, minnkar líkur á sjúkdómum og stuðlar að betri beinheilsu.

Brunaefnin, sem eru óæskilegir þungmálmar mælast í vatninu okkar, undir svokölluðum viðmiðunarmörkum ennþá.

Geislatæki bila eins og önnur tæki, þá daga sem svo er ástatt, rennur vatnið í gegn ógeislað.  Ég hvet fólk til þessa að kynna sér ávinning basísks vatns og einnig „Unwanted trace elements in water.“

Nýlega bárust ánægjulegar fréttir um að fundist hafi mikið af köldu neysluvatni í landi Geldingaár í Hvalfjarðarsveit. Ég hef smakkað þetta vatn og gert ph mælingu á því. Vatnið mældist með ph gildi upp á 8,9 sem gerið það að einu ferskasta neysluvatni sem fundist hefur á landinu.

Neysluvatn okkar er eitt að þeim málum sem ég hef haft mikinn áhuga á í langan tíma. Áhugi minn á vatninu kviknaði þegar ég starfaði sem rafvirki hjá HB og Co og það þurfti að setja geislatæki á kaldavatnsinntakið í frystihúsinu þar sem sýnataka sýndi háar mælingar gerla í vatninu.

Í stuttu máli:

  • Það er löngu kominn tími á að við Skagamenn hættum að drekka yfirborðsvatn.
  • Tryggjum okkur boðlegt neysluvatn.
  • Heilsa og heilbrigði eiga alltaf að njóta vafans.

Þetta er eitt af þeim málum sem Miðflokkurinn mun berjast fyrir komumst við í bæjarstjórn í komandi kosningum.

Með baráttukveðju,

 

Hörður Svavarsson

Höf. skipar 4. sæti á lista Miðflokksins á Akranesi