
Hvers konar samfélagi búum við í?
Sigríður Sjöfn Helgadóttir
Fréttirnar af samskiptum í kringum brotthvarf Guðmundar Inga Kristinssonar úr ráðherrastóli vekja upp spurningar sem ná langt út fyrir pólitíkina sjálfa. Í skilaboðunum sem birst hefur verið er talað um að valið hafi staðið á milli þess að fara frá eða „fara í stríð“. Guðmundur Ingi lýsir því sjálfur þannig að hann hafi ekki haft orku í slíkt stríð, nýkominn úr hjartaaðgerð (DV).
En kannski er áhugaverðara að spyrja: Er þetta bara birtingarmynd á toppi stjórnmálanna – eða þekkjum við þetta úr okkar eigin samfélagi? Í litlum sveitarfélögum getur sama manneskjan verið bæjarfulltrúi, formaður í félagi, stjórnarmaður í stofnun, tengd verkalýðsfélagi, sitja í skólanefnd og eiga svo náin persónuleg tengsl við fólkið sem tekur næstu ákvörðun. Sama manneskjan – fimm eða sex hattar.
Og þá verður erfitt að vita hvenær hún talar sem einstaklingur, hvenær sem fulltrúi, hvenær sem vinur og hvenær sem valdamaður. Þetta er ekki endilega spilling. En þetta getur skapað menningu þar sem allir þekkja alla, ákvarðanir verða persónulegar og það getur verið dýrkeypt að vera ósammála röngum aðila. Það má ekki gleyma því að í litlum samfélögum situr fólk oft í átthagafjötrum og hefur ekki burði til að standa með sjálfu sér.
Við sjáum þetta ekki bara í sveitarstjórnarpólitík. Þetta getur gerst í skólum, stofnunum, verkalýðsfélögum, félagasamtökum og alls staðar þar sem fáir einstaklingar fara með mörg hlutverk. Þá verður spurningin ekki bara hver tók ákvörðunina, heldur hver þekkir hvern, hver situr við hvaða borð og hverjir þurfa að sitja úti í kuldanum?
Kannski er þetta einn af veikleikum þess að búa í litlu samfélagi. Nálægðin getur skapað traust og samheldni – en hún getur líka skapað valdakerfi sem eru svo samtvinnuð að erfitt verður að sjá hvar ein stofnun endar og önnur byrjar. Og kannski þurfum við þess vegna stundum ekki fleiri reglur heldur einfaldlega meiri meðvitund um vald, hagsmunaárekstra og mannleg tengsl.
Þetta snýst líka um að vita hverjir sitja við borðið þegar við hin erum ekki þar. Því lýðræði snýst ekki bara um að kjósa. Það snýst líka um að spyrja hvort eitthvað sé siðlaust (siðlegt) þó það sé löglegt.
Sigríður Sjöfn Helgadóttir