Hvar er stórsóknin í vegakerfinu?

Sonja Lind Eyglóardóttir

Það er göfugt að skrifa grein um öflugt atvinnulíf, byggðafestu og framtíðartækifæri en það þarf meira en falleg orð til þess að láta verk verða að veruleika. María Rut Kristinsdóttir þingmaður Viðreisnar í NV kjördæmi sendi inn grein hér í Skessuhorn í síðasta mánuði þar sem hún fór yfir hvernig stjórnvöld væru nú að fara í stórkostlega fjárfestingu í samgönguinnviðum og viðhaldi vegakerfisins.

En þegar fjárlagafrumvarp ársins 2027 er skoðað vakna alvarlegar spurningar um hvort fjárveitingar og aðgerðir ríkisstjórnarinnar sem hún fór yfir í greininni samræmist yfirlýstum markmiðum hennar. Staðreyndin er nefnilega sú að fjárheimildir til samgöngu- og fjarskiptamála eru að lækka.

Samgönguáætlun – orð á blaði

Í desember 2025 kynnti ríkisstjórnin nýja samgönguáætlun fyrir árin 2026–2040 og boðaði samhliða aukið fjármagn til viðhalds vegakerfisins. Markmiðið var að stöðva uppsöfnun viðhaldsskuldar og bæta ástand vega um land allt. Jafnframt var boðað að framlög til viðhalds myndu nema um 17,5 milljörðum króna árið 2026 og 20 milljörðum frá árinu 2027.

Þingmaður Viðreisnar segir réttilega frá samþykkt samgönguáætlunarinnar í grein sinni en hann sleppir því að bera fjárveitinguna saman við markmið sömu ríkisstjórnar í samþykktri samgönguáætlun.

En hvað blasir við þegar fjárlagafrumvarpið er skoðað? Heildarfjárheimildir til samgöngu- og fjarskiptamála lækka um rúma 3,2 milljarða króna að raunvirði, eða um 4,3%, frá fyrra ári. Jafnframt er gert ráð fyrir lækkun fjárheimilda til framkvæmda á vegakerfinu vegna aðhaldsaðgerða. Það þýðir að framlag til viðhalds vega árið 2027 er 2,4 milljörðum lægra en gert var ráð fyrir í samþykktri samgönguáætlun, eða 12% undir fyrirheitinu. Hvar er sterka framtíðarsýnin hér?

Hvar eru peningarnir?

Þessu til viðbótar voru veiðigjöld hækkuð árið 2025 með fögrum loforðum um að það fjármagn yrði sett í gífurlega uppbyggingu innviða og samgangna um allt land. Í frétt á vef Stjórnarráðsins frá 25. mars 2025 segir að ætla megi að leiðrétt veiðigjöld skili allt að 10 milljörðum kr. í ríkissjóð. Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra sagði svo í ræðu sinni á Alþingi 5. maí 2025 „Það er eindregin og skýr stefna ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins að sú viðbótarfjárhæð sem leiðrétting á veiðigjaldinu felur í sér renni til uppbyggingar innviða í byggðum landsins.“ Þá nefndi hún sérstaklega vegakerfið, nýframkvæmdir og flutningskerfi raforku. Hvar eru þessir peningar núna í fjárlagafrumvarpinu?

Sama spurning vaknar þegar horft er til fyrirhugaðrar aukinnar gjaldtöku í ferðaþjónustu upp á 11 milljarða, sem á einnig að fara í uppbyggingu innviða. Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins 26. september 2026 er haft eftir atvinnuvegaráðherra „..Í samtali mínu við ferðaþjónustuaðila á þessum svæðum heyrði ég hins vegar skýrt að það er ekki nóg að bæta aðgengi með flugi og byggja upp áfangastaði. Það verður einnig að tryggja vegasamgöngur að þeim og á það mun ég leggja áherslu núna.“

Þá stendur til að hækka kílómetragjaldið um 15,9% árið 2027. Í fréttatilkynningu Stjórnarráðsins um gildistöku kílómetragjaldsins er haft eftir Daða Má Kristóferssyni fjármálaráðherra: „Breytingin býr til traustan grunn fyrir áframhaldandi uppbyggingu og viðhald vegakerfisins og skapar stöðugra umhverfi til framtíðar.“ Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 er gert ráð fyrir að tekjurnar af kílómetragjaldinu verði um 43,4 milljarðar króna en þær skila sér aftur á móti ekki í vegakerfið.

Ef ríkisstjórnin myndi fylgja eftir settum loforðum til þjóðarinnar um að allt þetta fjármagn myndi renna beint til uppbyggingar og viðhalds á vegakerfinu þá ættum við með réttu að vera að sjá um 50-60 milljarða króna aukningu.

Notið þá skattana, ekki yfirlýsingar

Við þurfum ekki fleiri almennar yfirlýsingar og frasa um mikilvægi samgangna. Ræsum vélarnar, lögum vegina, byrjum aftur að bora jarðgöng á Íslandi, fullfjármögnuð samgönguáætlun og stórsókn í viðhaldi vega eru allt innantómir frasar þegar við sjáum að auknar álögur skila sér ekki í öruggari vegum, betra viðhaldi eða áreiðanlegri vetrarþjónustu. Það sem við þurfum er að þið notið skattana sem þið hafið lofað að fari í vegaframkvæmdir fari þá í vegaframkvæmdir. Má ég biðja um minni froðu og meiri sannleika?

 

Sonja Lind Eyglóardóttir

Höf. er sveitarstjórnarfulltrúi Framsóknar í Borgarbyggð