
Hvar er ársreikningur Akraneskaupstaðar?
Ólafur Rúnar Sigurðsson
Núna þegar innan við þrjár vikur eru til sveitarstjórnarkosninga þá liggur ársreikningur Akraneskaupstaðar fyrir árið 2025 ekki enn fyrir. Það er ekki bara formsatriði; þetta er eitt mikilvægasta skjal bæjarins þegar kemur að rekstri, skuldum og ráðstöfun almannafjár. Ársreikningurinn er grunnurinn að upplýstri umræðu bæði fyrir kjörna fulltrúa jafnt sem íbúa Akraness.
Þegar ársreikning ársins 2025 vantar, þá vantar líka gagnsæið. Íbúar eiga rétt á að vita:
Hver er raunveruleg skuldastaða bæjarins?
Hvernig hefur reksturinn þróast?
Hvert hafa fjármunirnir farið?
Það er einfaldlega ekki ásættanlegt að þessi gögn liggi ekki fyrir þegar kjósendur eiga að taka upplýsta ákvörðun um framtíð bæjarins.
Já, ársreikningar eru oft birtir í apríl eða maí. En það breytir ekki því að tímasetning skiptir loka máli. Þegar kosningar eru handan við hornið á að vera forgangsverkefni að tryggja að allar lykilupplýsingar séu aðgengilegar.
Gagnsæi er ekki eitthvað sem má bíða. Það er forsenda trausts.
Ef ekkert er að fela, þá ætti ekkert að tefja.
Spurningin er einföld: Af hverju liggur ársreikningurinn ekki fyrir?
Bæjarbúar eiga skilið skýr svör — áður en þeir ganga að kjörborðinu.
Ólafur Rúnar Sigurðsson
Höf. skipar 3. sæti á lista Miðflokksins X-M á Akranesi.