
Hvað ungur nemur, gamall temur
Kristján Ágúst Magnússon
Hvað vitum við í raun um líðan barna og ungmenna í okkar samfélagi?
Á undanförnum misserum hefur sífellt meiri athygli beinst að líðan barna og ungmenna í íslensku samfélagi. Þá vaknar spurningin: Hvað vitum við um líðan barna og ungmenna í okkar litla en góða samfélagi í Borgarbyggð?
Á sveitarstjórnarfundi Unga fólksins, sem haldinn var í mars sl. komu fram ábendingar og áhyggjur sem vert er að staldra við. Þar kom meðal annars fram hjá þeim ungmennum sem tóku til máls að þau yrðu vör við, eða hefðu heyrt af, vanlíðan jafnaldra sinna. Þá má velta fyrir sér hvort við sem samfélag séum að gera nóg fyrir unga fólkið okkar. Upp hafa komið eineltismál bæði í grunn- og framhaldsskóla í héraðinu. Það er mikilvægt, að þegar og ef eineltismál koma upp, séu þau tekin alvarlega og unnið markvisst að farsælli lausn þeirra. Þá þurfa allir að taka höndum saman. Það er ekki einkamál skólans ef upp kemur einelti, við foreldrar erum ekki síður mikilvæg. Við vitum öll hvað einelti hefur slæmar afleiðingar fyrir þann sem fyrir því verður og það á sérstaklega við um börn og unglinga. Við þurfum að þora að axla ábyrgð og taka samtalið. Við þurfum að viðurkenna vandann og vera tilbúin að vinna markvisst að úrbótum.
Upplifun barna og ungmenna af uppvaxtarárum sínum skiptir miklu máli. Við viljum að þau upplifi öryggi, stuðning og tækifæri til vaxtar og þroska. Sterk tengsl við heimabyggðina auka líkur á að þau snúi aftur eftir nám og taki virkan þátt í samfélaginu okkar.
Í Borgarbyggð eru öflugar menntastofnanir á öllum skólastigum, þær eru ein af grunnstoðum samfélagsins og mikilvægt að hlúa að þeim, svo þær geti áfram sinnt sínu mikilvæga hlutverki.
Í Borgarbyggð eru ýmsar tómstundir í boði, t.d. öflugur tónlistar- og listaskóli. Félagsmiðstöðvar eru einnig á grunnskólastigi og svo hefur verið rekið öflugt félagsstarf í Menntaskóla Borgarfjarðar.
Á fundi Farsældarráðs Vesturlands sem haldinn var í apríl sl. kom fram að þátttaka barna í Borgarbyggð í íþróttum er vel undir landsmeðaltali. Hvað þýðir það? Þrátt fyrir að margt sé vel gert og árangur í íþróttum oft góður, vakna spurningar um hvort sú mynd gefi rétta heildarsýn af líðan allra barna og ungmenna í sveitarfélaginu.Það er staðreynd að þátttaka í íþrótta- og tómstundastarfi hefur forvarnargildi og því er til mikils að vinna að fá börnin okkar og unglingana til að taka þátt.
Lög um farsæld barna tóku gildi árið 2022 og fellur Borgarbyggð undir þau eins og önnur sveitarfélög á landinu. Þar eru verkfæri og verkferlar sem nýtast vel við að bæta líðan barna í Borgarbyggð. Með Farsældarráði Vesturlands myndast tenging við önnur sveitarfélög á Vesturlandi varðandi hugmyndavinnu og framkvæmd farsældarlaganna.
Á þessari upptalningu sést að tækifærin eru til staðar og mannauðurinn er einnig til staðar. það dugar þó skammt ef við nýtum það ekki sem skyldi. Við megum ekki gefa afslátt af velferð og vellíðan barnanna okkar.
Sjálfstæðisflokkurinn ætla að leggja áherslu á að vellíðan og heilsa barna og ungmenna sé í forgangi. Það er lykillinn að sterku og heilbrigðu samfélagi til framtíðar.
Kristján Ágúst Magnússon
Höf. skipar 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Borgarbyggð og Skorradalshreppi.