
Huppa á Kluftum hundrað ára
Jón Viðar Jónmundsson
Fólk og fyrirtæki gera sér oft dagamun með að halda upp á afmæli sitt. Aldarafmæli þykja þar virðuleg. Framundan er slík hátíð einnar bestu dóttur Íslands á síðustu öld. Það er Huppa á Kluftum sem er ættmóðir íslenska kúastofnsins í dag. Afrek hennar er þegar meira en flestra jafnaldra hennar. Búnaðarfélag Íslands og hennar eina félag Nautgriparæktarfélag Hrunamanna hafa fagnað minni afmælum með virðulegum samkomum.
Nautgriparæktarfélagið heldur uppi fánanum og boðar til samkomu á afmælisdaginn þriðjudaginn 3. nóvember á Flúðum kl. 10.30 þar sem fyrri afmælum var fagnað. Auk félagsins standa að ráðstefnunni Hrunamannahreppur og Búnaðarsamband Suðurlands. Hér skal aðeins rifjað upp hver Huppa var og hvað boðið verður uppá á samkomunni.
Huppa bjó nánast alla sína löngu ævi á Kluftum. Hún var fágætur yfirburðagripur um afurðagetu, endingu og frjósemi. Undan henni voru aldar fimm dætur og sjö synir. Tvær dætranna urðu landsþekktar nautsmæður. Nautin dreifðust víða um land og urðu flest mjög áhrifamikil. Jafnmikil áhrif frá einni ættmóður eins og Huppu hjá jafnstóru kúakyni í heiminum öllum hefur ekki tekist að finna.
Á ráðstefnunni verður fyrst fjallað um Klufti heimili Huppu. Þá verður æviferill hennar og uppruni rakinn það sem þekkt er. Örlítið sagt af umboðsmanni hennar sem líka bjó í sveitinni og var fræðimaðurinn Helgi Haraldsson bóndi á Hrafnkelsstöðum. Síðan verður gerð grein fyrir dreifingu gena hennar um allt land nema á Hornstrandir þar sem ekki fundust heimildir um þau. Spáð verður aðeins í framtíðina og rannsóknir á erfðamengi Huppu.
Huppuhornið er glæsilegasti verðlaunagripur nautgriparæktar á Íslandi sem félagið gaf á 40 ára afmæli Huppu. Saga þess rakin. Þá verður fjallað um liti íslenskra kúa og áhrif Huppu á dreifingu þeirra á Íslandi. Nöfn íslenskra nautgripa rædd og hlutur Huppunafnsins sérstaklega.
Lokakafli fundarins verður kynning á glænýjum rannsóknum á áhrifum Huppu hjá íslenskum nautgripum en þau eru einstök í heimssamanburði en verða ekki rakin hér.
Vonir standa til að veglegt afmælisrit sem Skrudda gefur út verði komið úr prentun þegar ráðstefnan verður. Þar verður til viðbótar efni ráðstefnunnar fjallað um fleiri þætti nautgripakynbóta á Íslandi..
Með þessum orðum hvet ég alla kúabændur, bæði þá sem eru starfandi en einnig þá sem látið hafa af störfum, til að sækja Flúði heim á fundinn og/eða kaupa bókina.
Jón Viðar Jónmundsson
