Hún er góð!

Guðsteinn Einarsson

Mikil umræða er nú um stundir í samfélaginu vegna verðbólgunnar. Ef þróun vísitölu neysluverðs er skoðuð síðastliðin tíu ár þá er staðan þessi:

Í ágúst 2016 var neysluvísitalan 436,4 stig. Nú í ágúst var vísitalan komin í 694,6 stig, sem sagt hækkað upp á rétt um 59%. Þetta segir okkur að „normal“ verðbólga á Íslandi er ca. 5% +/- eitthvað. Stundum lægri og stundum hærri.

Þetta segir okkur að verðbólgan nú um stundir er nokkuð eðlileg, þó væntingar hafi verið um eitthvað lægri verðbólgu á þessum tímapunkti. Því er engin ástæða fyrir stjórnarandstöðuna að vera með einhverjar upphrópanir. Þá er líka rétt fyrir maddömurnar sem nú eru í forystu Sjálfstæðisflokks og Framsóknar að minnast þess að á þessum síðustu tíu árum þá voru þessir flokkar í ríkisstjórn með VG í samtals sjö ár. Þannig að þeirra frammistaða var síst betri en frammistaða núverandi ríkisstjónar.

Og ef við erum að kvarta nú þá skulum við minnast þess að nýlokið er kosningum sem m.a. snerust um þau langtíma sjónarmið að hér væri hægt að taka upp Evru, sem líklega er talsvert stöðugri mynt en krónan. En breytingum var hafnað af meirihluta kjósenda sem telja að það sé hluti af sjálfstæði þjóðarinnar að hafa flöktandi mynt.

Og nú er gengi krónunnar nokkuð gott. Evran er á 141 krónu. Þegar, ekki ef gengi Evru fer í  150 kallinn, en gengið á Evru 4. september 2024 var 153,50, þá hækkar verð á allt og öllu og afleiðingin; gott verðbólguskot.

Álit og ástæða þeirra sem kusu nei var m.a. að krónan væri góð, hægt væri að „leiðrétta“ kjörin ef harnaði á dalnum með því að „leiðrétta“ gengið. Og verðtrygging tryggir hagsmuni lánastofnana og leigufélaga, þannig að þar er ekkert að óttast.

Niðurstaðan er að krónan sé góð og að verðbólgan sé góð. Spurningin er bara, fyrir hverja?

 

Borgarnesi, 3. september 2026.

Guðsteinn Einarsson