
Hugleiðingar um sorpmál í Borgarbyggð
Þórður Brynjarsson
Sorpmál snerta flest okkar, enda þurfa víst allir að losna við sorp, í mismiklum mæli þó. Mörgum þykir eflaust undarlegt að sjá sorpgjöld hækka, meiri kröfur um flokkun gerðar til fólks en samt er eins og að þjónustan batni ekki, en versni heldur. Þetta þarf að athuga.
Rusl í sveitum
Á undanförnum árum hefur sorphirða tekið miklum breytingum, ekki síst í dreifbýli. Margir muna eftir gámum sem stóðu öllum opnir víðs vegar um sveitirnar þar sem að fólk gat losnað við sorp með einföldum hætti í sínu nærumhverfi. Þeir gámar týndu þó tölunni og að lokum fór svo að enginn var eftir. Íbúar dreifbýlisins eiga því engan kost á að losna við sorp öðruvísi en að koma því fyrir í tunnum við heimahús eða aka með það um langan veg á móttökustöð í Borgarnesi.
Þó svo að gömlu gámarnir komi ekki aftur, enda slíkt fyrirkomulag óleyfilegt með tilkomu nýrra laga og reglna, þá er ekki hægt að una við svo búið.
Við í Miðflokknum viljum koma upp litlum og skilvirkum mönnuðum móttökustöðvum fyrir sorp í dreifbýli sveitarfélagsins til þess að fylla í skarðið sem gömlu gámarnir skilja eftir sig.
Ný móttökustöð fyrir sorp í Borgarnesi
Það hefur varla farið framhjá neinum sem um veginn fer að gámastöðin við Sólbakka í Borgarnesi er barn síns tíma og ekki fær um að sinna hlutverki sínu. Sveitarfélagið hefur vaxið mikið síðan að hún var opnuð og áherslur í sorpmálum breyst gríðarlega. Markmið um hringrásarhagkerfi, sem felur m.a. í sér aukna flokkun og betri nýtingu á sorpi, hefur orðið til þess að móttaka á sorpi er flóknari og fyrirferðarmeiri en áður. Í sorpinu liggja mikil verðmæti og til að nýta þau sem best er nauðsynlegt að standa vel að móttöku og flokkun.
Nauðsynlegt er að komið verði á laggirnar nýrri stöð, sem yrði bæði stærri og skilvirkari en sú sem nú er. Þróunin á landsbyggðinni er sú að sveitarfélög eru í auknum mæli að sinna ákveðnum eða jafnvel öllum hlutum sorpmála sjálf í stað þess að útvista þeim til verktaka, en undirstaða allra slíkra hugmynda er stór miðlæg móttökustöð sem tekur við öllum gerðum úrgangs.
Fáum gáma í sveitirnar og hættum að bíða í biðröð við gömlu gámastöðina, setjum x við M þann 16. maí.
Þórður Brynjarsson
Höf. skipar 2. sæti á lista Miðflokksins í sveitarstjórnarkosningum í Borgarbyggð.