Holtavörðuheiðarlína

Sigurður Guðmundsson

Ég sat áhugaverðan fund í gærkvöldi í Hjálmakletti í Borgarnesi um raflínulagnir, eignarrétt og endurgjald. Raflínulagnir eru einn af grunninnviðum hvers samfélags og er lykil innviður í þróun nútímasamfélags og mjög mikilvægt að raflínur og flutningsgeta þeirra sé tryggð til að mæta síaukinni þörf samfélagsins eftir raforku.

Það breytir því hinsvegar ekki að val á línustæðum er mjög vandasamt verk sem nauðsynlegt er að sé gert af virðingu, trúverðugleika og trausti þess aðila sem er falið það verkefni sem er í okkar tilfelli Landsnet.  Fundurinn var mjög góður og uppsetning hans afhjúpaði algjörlega þá gjá og vantraust sem hefur myndast á milli Landsnets og landeigenda í Borgarfirði.  Eftir fundinn ætti það að liggja ljóst fyrir að fyrirtækið Landsnet hefur ekki tekist að skapa traust landeigenda fyrir því að fyrir liggi þjóðhagsleg nauðsyn Holtavörðuheiðalínu, nauðsyn þess að fara í gegnum tugi jarða í einkaeigu sem eru flestar í ábúð og á flestum þessara jarða er rekinn landbúnaður, þvera stóran hluta af laxveiði ám héraðsins.

Aðgerðir Landsnets undanfarin ár hafa ekki verið til þess fallnar að auka traust til starfa þeirra, upplifun einstakra bænda eru á þann veg að það sé ekki vilji til þess að beygja fram hjá takmörkuðu ræktarlandi jarða á meðan hægt er að beygja framhjá eyðijörð til tugi ára í eigu auðmanns, upplifun landeigenda á línuleiðinni er einnig sú að Landsnet hafi ekki skoðað fleiri möguleika fyrir línustæði t.d. línu yfir Kaldadal og Arnavatnsheiði yfir á Holtavörðuheiði.

Áhersla Landsnets á stofnun raflínunefndar með síendurteknum umsóknum til ráðuneytis er ekki til þess fallið að auka trúverðugleika Landsnets þar sem það virðist vera skoðun Landsnets að skipun nefndarinnar auðveldi þeim að leggja línuna þar sem þeim sýnist, sem ég tel vera algjöran misskilning þar sem samningar um línuna við landeigendur er lykill af því að hægt sé að setja línuna á skipulag og veita framkvæmdarleyfi sem er eini tilgangur raflínunefndarinnar.

Hvað er þá til ráða fyrir Landsnet? Mínar ráðleggingar til þeirra eru að bakka aðeins og fá utanaðkomandi ráðgjöf helst erlenda ráðgjafa til að fara yfir stöðuna og meta hvort það séu aðrir kostir í stöðunni fyrir línulögn á þessu svæði sem gæti leyst þann hnút sem málið er augljóslega í. Lausnin felst ekki í því að einfalda eignarnámsferlið eins og stefna núverandi stjórnvalda virðist vera.  Lausnin á alltaf að vera sú að finna bestu leiðina og þar hvet ég Landsnet að skoða betur Kaldadals- og Arnavatnsheiðarleiðina sem gæti ef vel er á haldið leyst annan innviðavanda sem við á Vesturlandi eigum við að etja og það er betri tenging við Suðurland um Uxahryggi og Kaldadal. Með því að leggja Holtavörðuheiðarlínu yfir Kaldadal og byggja upp vegin þar samhliða þá væri hægt að slá tvær flugur í einu höggi.  Ég hvet því Landsnet að skoða þetta ofan í kjölinn, þær hindranir sem eru fyrir þessari leið eru hugsanlega auðveldari en að rjúfa samstöðu Borgfirðinga.

 

Sigurður Guðmundsson

Höf. skipar fyrsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í Borgarbyggð og Skorradalshreppi