Heiðarleið A3 í stað Holtavörðuheilarlínu  – til umhugsunar yfir páska.

Haukur Þór Hauksson

Ég held að það sé fátt sem veldur mörgum Borgfirðinum meiri áhyggjum en vænt leið Holtavörðuheiðarlínu í gegnum blómlegar byggðir Borgarfjarðar. Í stað þess að fara stystu leið með línuna frá Grundartanga yfir hálendið að Blöndulóni, svokallaða hálendisleið A3 þá áformar Landsnet  að fara yfir láglendi Borgarfjarðar með 220.000 þúsund volta línu sem hangir á möstrum sem eru 18 til 26 metra há.  Hluti af rökum Landsnets er það að styrkja leiðina til Vestfjarða, það eru rök en ekki mjög sterk. Mun farsælla væri að aflað væri orku á Vestfjörðum en þar er gnægð ónýttra tækifæra til orkuöflunar sem dugar vel fyrir öfluga atvinnuvegi svæðisins auk heimilisnota.

Heljarinnar raflínur í gegnum sveitir Borgarfjarðar hafa þegar stuðlað að sundrungu í samfélaginu, línan mun fara í gegnum fjölda jarða og rýra verðgildi þeirra og möguleika til nýtingar til langrar framtíðar. Efnahagur íbúa í uppsveitum Borgarbyggðar stendur á fótum landbúnaðar, laxveiðiauðlinda og ferðaþjónustu auk annars. Möguleikar svæðisins til framtíðar felast á þessum sviðum auk aukinnar byggðar, skólastarfsemi og ekki síst nýsköpunar en ekki orkufrekri starfsemi. Einnig má  minnast á að mikil tækifæri felast í Borgarbyggð í formi jarðvarmavirkjana sem stutt getur orkubúskap svæðisins.

Mín skoðun er sú að við ættum að leggja mikið á okkur til að koma í veg fyrir að þessar háspennulínur fari í gegnum hérað okkar, sérstaklega þegar önnur góð og styttri leið er í boði en hún liggur nær alfarið í gegnum lönd í eigu ríkisins. Ég skora á þingmenn, sveitastjórnarmenn og allan almenning að þrýsta á að orku til Grundartanga verði aflað með línu sem fer stystu leið yfir hálendið og að blómlegum byggðum Borgarfjarðar verði hlíft.

Haukur Þór Hauksson Fornastekk, 1. maður á lista Miðflokksins í Borgarbyggð.