
Háskólanám á umbreytingartímum
Anna Hildur Hildibrandsdóttir
Ný tækifæri í rannsóknum og samfélagsrýni við Háskólann á Bifröst
Ef forfeður okkar myndu kíkja við hjá okkur í nútímanum kæmi margt þeim spánskt fyrir sjónir. Snjallsímar og tölvur, frystitogarar og fjarfundabúnaðar, rafmagnsbílar og mjaltavélmenni. Ekkert er eins og var og það eina sem við vitum á tímum hraðra tækninýjunga er að allt er breytingum undirorpið. Við lifum á tímum atvinnuháttabyltingar þar sem þróun á stafrænni tækni umbreytir flestu sem við þekkjum og loftslagsváin knýr okkur til að hugsa um daglegar venjur í nýju ljósi. Hefðbundin landbúnaðarhéruð og sjávarþorp hafa fengið nýja ásýnd þar sem nýsköpun á öllum sviðum ryður sér til rúms. Menning og skapandi greinar skipa þar stóran sess og er nú viðurkenndur atvinnuvegur samhliða frumframleiðslu, iðnaði og þjónustu sem áður skipuðu grunnstoðirnar þrjár í efnahagslífi Íslendinga.
Skapandi Vesturland
Góð dæmi um þetta á Vesturlandi eru Landnámssetrið, Frystiklefinn og Nýp svo fáein dæmi séu nefnd. Skyrmolarnir á Erpsstöðum eru lítið dæmi um nýsköpun sem leiddi af sér snjóboltaáhrif á kúabúi og ferðaþjónustan í Húsafelli er orðin risavaxið verkefni þar sem uppbygging er í miklum blóma. Þannig leiðir eitt af öðru á hringekju nýsköpunar sem byggir á sköpunarkrafti og hugviti.
Háskólinn á Bifröst fór af stað með diplómanám í skapandi greinum árið 2020 og vegna eftirspurnar var ákveðið að bjóða upp á BA nám í faginu strax árið 2021. Fyrstu nemendur í þessari nýju námslínu eru að útskrifast nú á þorra og vordögum. Námið nýtur góðs af því frumkvöðlastarfi sem skólinn býr að í menningarstjórnunarnáminu sem sett var á laggirnar árið 2004 og þeim öflugu rannsóknum sem fræðimenn við skólann hafa stundað.
Menningarkortlagning
Á þessum grunni byggir áhugi Háskólans á Bifröst á að leiða undirbúning að stofnun rannsóknaseturs skapandi greina sem stefnt er á að líti dagsins ljós síðar á þessu ári. Bifröst hefur leitt þetta starf í samvinnu við Listaháskóla Íslands og Samtök skapandi greina vitandi að til að mæta samfélagsbreytingum þarf að efla rýni og rannsóknir. Sem fjarnámsskóli getur Háskólinn á Bifröst boðið upp á jafnræði til náms óháð búsetu en um leið er það hlutverk hans að bjóða upp á samtal, aðstöðu og samvinnu við nærsamfélagið til að skoða saman áskoranir og tækifæri með tengingu við þjóðfélagið allt og alþjóðasamfélagið. Það hljóp á snærið hjá okkur þegar okkur var boðið að vera aðilar að IN SITU verkefninu þar sem áhrif menningar og skapandi greina á nýsköpun er skoðuð og það rímar við áherslu okkar á alþjóðlegt rannsóknasamstarf.
IN SITU er umfangsmikil Evrópurannsókn framkvæmd af 13 rannsóknastofnunum í 12 löndum og er Vesturland eitt ef sex tilraunasvæðum hennar. Í verkefninu fáum við tækifæri til að kortleggja alla þá einstaklinga og fyrirtæki sem starfa innan menningar og skapandi greina á Vesturlandi og bjóða þeim í samtal og samstarf um rannsóknina.
Viðskiptaháskóli fyrir framtíðina
Þannig tekst okkur að skoða umbreytingatímana út frá sjónarhorni menningar og skapandi greina og búa til þekkingu á áhrifum þeirra. Þekkingu sem við getum miðlað í náminu sem boðið er upp á í skapandi greinum í grunnnámi og í menningarstjórnunni á meistarastigi.
Í slíkum jarðvegi skapast tækifæri til frekari rannsókna og ljóst er að væntanlegt rannsóknasetur mun blása lífi í gagna- og þekkingaröflun sem er forsenda þess að búa til nýja þekkingu og skilning. Nemendur eru mikilvægir þátttakendur í slíkri þróun.
Framtíðin hefur bankað upp á og Háskólinn á Bifröst hleypir henni inn.
Á 25 ára afmæli Skessuhorns er ekki úr vegi að nefna að fjölmiðlar eru hluti af menningu og skapandi greinum samkvæmt menningarvísum Hagstofunnar. Við hlökkum því til samstarfs við afmælisbarnið í framtíðinni sem og alla þá sem miðla fréttum og hvers kyns efni sem hefur með menningu okkar að gera.
Anna Hildur Hildibrandsdóttir
Höfundur er fagstjóri skapandi greina við Háskólann á Bifröst og formaður undirbúningsstjórnar fyrir stofnun rannsóknaseturs skapandi greina.