Hagnaðinn til neytenda

Elsa Lára Arnardóttir

Þessa dagana heyrum við fréttir af gríðarlegum hagnaði viðskiptabankanna þriggja, þ.e. Landsbankans, Íslandsbanka og Arion banka. Samanlagt tóku þeir inn 80 milljarða króna hagnað á síðasta ári og er hagnaður þeirra þriggja frá hruni 370 milljarðar. Þessi hagnaður kemur á sama tíma og þessir sömu viðskiptabankar hafa verið að bæta við þjónustugjöldum og í mörgum tilfellum að hækka þau þjónustugjöld sem fyrir voru. Má þar meðal annars nefna úttektargjald, hraðbankagjald, svargjald bankaþjónustu, greiðslugjald, kortagjald og svona er hægt að telja áfram. Þessir gjaldaliðir eru um 30 talsins. Þingmaður Framsóknarflokksins, Karl Garðarsson, gerir ágætlega grein fyrir þessum þjónustugjöldum í færslu á Eyjunni.

Færsluna má finna hér: http://blog.pressan.is/karlg/2016/02/09/svona-erum-vid-feflett/  Í færslu hans kemur jafnframt fram að fólki blöskri og það sé búið að fá nóg. Það er ekki annað hægt en að taka heils hugar undir þau orð hans þegar kemur að þessum þáttum í bankakerfinu. Við þurfum að skapa nýtt og heiðarlegra bankakerfi.

Hvað er til ráða?
Aðgreina þarf á milli fjárfestingar- og viðskiptabanka. Afnema þarf verðtryggingu og taka um leið á því vaxtaumhverfi sem við búum við. Jafnframt þarf að líta til hugmynda Frosta Sigurjónssonar, þingmanns Framsóknarflokksins, um breytt peningakerfi. Samantekt um málið er að finna hér: https://www.forsaetisraduneyti.is/media/Skyrslur/monetary-reform-samantekt-isl.pdf. Meðan þessi vinna er í gangi eiga forsvarsmenn þessara fjármálastofnana að sýna sóma sinn í því að leyfa neytendum landsins að finna fyrir þeim gríðarlega hagnaði sem fjármálastofnanirnar hafa náð. Það ættu þeir að geta gert með því að kalla til baka þær hækkanir sem orðið hafa á þjónustugjöldum eða fækka þeim þjónustuliðum sem rukkað er fyrir og að lækka vexti. Það gæti orðið gríðarleg kjarabót fyrir heimili landsins.
Greinin er byggð upp á ræðu sem höfundur flutti í Störfum þingsins, þann 1. mars s.l.

Elsa Lára Arnardóttir
Höf. er þingmaður Framsóknarflokksins og varaformaður velferðarnefndar