Grundakóli fagnar 35 ára starfsafmæli
Sigurður Arnar Sigurðsson
Í ár höldum við upp á 35 ára afmæli Grundaskóla en hann var fyrst settur 6. október 1981. Við fögnum farsælu skólastarfi þar sem stofnunin hefur vakið athygli fyrir frumkvæði, metnað og góðan árangur.
Á níunda áratug síðustu aldar var mikill skólamálaumræða um að nauðsynlegt væri að gera gagngerar breytingar á skólum og breyta kennsluháttum. Grundaskóli var í upphafi stofnaður í anda nýrra hugmynda og strax á fyrsta ári varð skólinn þekktur fyrir að fara ótroðnar slóðir í kennslumálum. Skólinn var oft kenndur við umræðu um svokallað opið skólastarf en slíkir skólar voru þekktir fyrir að brjóta upp bekkjarstarf og halda teymisvinnu á lofti. Skólinn var m.a. hannaður með það að leiðarljósi að auðvelt væri að opna kennslurými og brjóta upp starfið. Mikil áhersla var lögð á verk- og listgreinar og þær áherslur hafa haldist allt til þessa dags.
Á fyrstu starfsárum Grundaskóla voru ekki allir bæjarbúar sammála um hugmyndafræði og starfshætti skólans og í eitt skipti var skólanum lýst sem allsherjar lausagöngufjósi. Þessi lýsing hefur oft verið tekin upp og rædd innan og utan skólans en í stað þess að líta á þessa lýsingu sem neikvæða hafa menn séð þessa umsögn sem hin bestu meðmæli. Frá fyrsta degi hefur skólastarfið byggt á ákveðnum grunngildum sem eru samvinna , traust og virðing. Áhersla er lögð á að hafa trú á nemendum og byggja á styrkleikum þeirra. Allir geta gert eitthvað en enginn allt. Hagsmunir nemenda hafa ávallt verið í fyrrúmi.
Grundaskóli er góður skóli af því að þar eru frábærir nemendur, öflugur foreldrahópur og góðir starfsmenn. Lengst af fór Guðbjartur Hannesson (Gutti) fyrir skólastarfinu og hugmyndafræði hans og áherslur lifa enn í dag. Annar skólastjóri skólans var Hrönn Ríkharðsdóttir en hún hætti störfum við skólann s.l. vor eftir farsælan feril sem stjórnandi.
Í dag starfa rúmlega eitt hundrað starfsmenn við skólann og nemendur eru 630. Grundaskóli er orðinn einn af fjölmennustu skólum landsins en þrátt fyrir það er enn sama hugsun við líði og á fyrstu starfsdögunum. Mikill metnaður fyrir skólastarfinu og skólasamfélagið samstillt í að sækja fram og gera ávallt sitt besta.
Grundaskóli nýtur þess á margvíslegan hátt að á bakvið skólastarfið stendur samstilltur hópur sem er reiðubúinn til að leggja hönd á plóg þegar á þarf að halda. Dæmi um slíkan hóp eru hollvinir skólans en þann hóp skipa fyrrum nemendur skólans. Hollusta við skólann er kannski besta umsögnin um gott skólastarf. Er skólinn hlaut árið 2005 fyrstur grunnskóla íslensku menntaverðlaunin var eftirfarandi umsögn höfð eftir nemendum. „Við útskrifumst úr Grundaskóla en við yfirgefum skólann aldrei.“
Fjölmargir af núverandi starfsmönnum skólans eru fyrrverandi nemendur. Grundaskóli er fyrirmyndar vinnustaður og hér er gott að nema og starfa. Skólinn hefur hlotið margvísleg verðlaun og viðurkenningar fyrir framsækið skólastarf og farsælt starfsmannahald. Til marks um gæði vinnustaðarins má geta að tugir umsókna berast um hvert auglýst starf og fagfólk skipar hverja kennarastöðu og menntunarstig er hátt.
Þegar 35 ára afmæli Grundaskóla er fagnað ber að þakka öllum þeim sem lagt hafa skólanum lið á þessum árum og óska þess að framtíðin verði jafn farsæl og hingað til. Það er ekki sjálfgefið fyrir Akraneskaupstað að eiga svo öfluga skólastofnun. Við sem nú störfum við skólann heitum því að halda merki Grundaskóla hátt á lofti og leggja okkur öll fram við að reka fyrirmyndarstofnun á allan hátt. Framtíð skólans er björt og við munum halda áfram þróttmiklu og árangursríku skólastarfi til heilla fyrir nemendur okkar og bæjarfélag.
Ég óska nemendum, starfsfólki og Akurnesingum öllum til hamingju með 35 ára afmæli Grundaskóla.
Sigurður Arnar Sigurðsson, skólastjóri Grundaskóla